Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Fyrsta einkunn komin í hús

31. ágúst 2009 klukkan 11:01
Fór í próf í morgun en einkunnin úr því gildir 20% af heildareinkunn í stórum 10 eininga áfanga sem ég er í. Þetta var próf í plöntuþekkingu en við fengum fyrir 10 dögum lista yfir 110 tegundir sem við áttum að læra fyrir prófið í morgun. Af þessum 110 tegudnum voru 28 trjá- og runnategundir en ég þekkti um helminginn fyrir. Trjátegundirnar varð maður að læra bæði norsku og og síðan auðvitað latnesku heitin.
Hinar 82 tegundirnar voru lágplöntur þ.e. blóm, lyng, mosar og grös og þær tegundir áttum við að lærar bara norsku nöfnin. Ég var nú í nettu sjokki fyrst því ég hafði ekki einu sinni latnesku nöfnin til að bjarga mér á...! En ég náði að undirbúa mig vel í síðustu viku og um helgina.
Prófið var svo í morgun og það var þannig upp sett að við komum þarna fórum inn í herbergi og greindum 20 sýni sem lágu á borðum og urðum að skrifa heiti þeirra á blað sem búið var að útbúa fyrir okkur, síðan skiluðum við blaðinu og fórum út úr herbeginu. Það voru alltaf um 5 í einu inni í herberginu og þegar einn var búinn var öðrum hleypt inn. Þannig að þetta gekk nokkuð hratt fyrir sig. Kennararnir voru tveir, annar sá um að hleypa nýjum og nýjum inn en hinn tók við blöðunum og fór yfir.
Þegar við vorum búin áttum við að bíða inná kaffiteríu sem var innan við prófherbergið og eftir ca einn og hálfan tíma lág allt fyrir. Ég var með 16 af 20 rétt og fæ því einkunina B og ég er nú bara nokkuð sátt við hana. Það er ekki slæmt að fá átta!
Ég vissi vel hvað ég klikkaði á en það voru mosarnir og grösin en villurnar voru þessar:
Bjørnemose í stað Fagermose
Krussigd í stað Blanksigd
Hårfrytle i stað Myskegras
Myskegras í stað Lundrapp
Fáránlegar villur, sérstaklega grösin en OK ég er mjög sátt Laughing

 
Ragnhildur Jónsdóttir
Náttúrulega alveg fáránlegt hjá þér að rugla saman Hårfrytle og Myskegras - skil bara ekkert í þér!! :) En nei annars, ég hefði nú líklega fallið á þessu prófi. Flott hjá þér að byrja námið með svona stæl!
#1
31. ágúst 2009 klukkan 11:36
 
Sigga Júlla
Tusen takk Ragnhildur:) Það er ágætt að byrja svona vel;)
#2
31. ágúst 2009 klukkan 18:50

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.