Kaffibollinn og VG
30. ágúst 2009 klukkan 07:59
Sit hér með kaffibollann og laugardagsblað VG eftir að hafa rúllað eina umferð yfir flórukunnáttuna fyrir morgundaginn.
Í fréttum er það helst að á forsíðu VG er mynd af hinni bandarísku Jaycee sem var rænt fyrir 18 árum í Kaliforníu og inní blaðinu eru tvær opnur í umfjöllun um þetta mál og loftmynd af "bakgarði" ræningjanna. Þetta er nú sjálfsagt í blöðunum heima líka. Annars er annað mjög fyrirferðarmikið mál í öllum fjölmiðlum hér en það er "kongo-dramaet" mál tveggja norðmanna sem sitja í fangelsi í Kongó og eru þeir sakaðir um morð. Það er ekkert lítið sem Kongómenn krefja norðmenn um að greiða fyrir piltana, man ekki töluna heyrði hana um daginn en einhverjir tugir milljóna NOK.
Mál málanna eru hins vegar kosningarnar sem verða hér eftir ca tvær vikur. Hún er mjög áberandi allsstaðar hún Siv Jensen í Frp-valget (framfaraflokkurinn, held ég) en í gær lagði hún fram 101 punkt sem flokkurinn ætlar að framkvæma þegar hann verður búinn að vinna kosningarnar og það á 100 fyrstu dögum í stjórn.
Eitt af því sem er slegið upp hér í blöðunum er að hún vill breyta reglunum um áfengissölu í matvöruverslunum. Hér er nefnilega seldur léttur bjór í búðum og hann má selja til klukkan 20 á vikrum dögum en kl 18 um helgar!!! Ég veit ég veit, skrítnir þessir norðmenn - af hverju að selja bjór í búðum ef það má bara á vissum tímum -spurði ég (og fékk þetta svaka hláturskast!!!) Siv vill breyta þessu og selja allt vín í matvörubúðum og ekki vera með einhvern ákveðin tíma heldur að það megi selja vín/bjór á meðan búðin er opin. OK kúl ef þetta er aðalmálið í kosningunum þá hef ég nú ekki miklar áhuyggjur af kreppu........
Jæja best að halda áfram að stauta sig í gegn um blaðið, góðar stundir!

Dugleg ertu að lesa blöðin svona á morgnana :) Báðar þessar fréttir hafa birst hérna í blöðum/netfréttamiðlum, þó eitthvað meir um hana Jaycee heldur en norsku mennina. Skiljanlega meir um þá hjá þér en hér.
Hún Siv Jensen er nú greinilega á atkvæðaveiðum hjá yngstu kjósendunum, sýnist mér :) Og þetta á að heita framfaraflokkurinn!! :D Þvílíkar framfarir! ;) Margt mikilvægara sem hægt er að hafa á stefnuskránni en þetta!
Annars er allt fínt að frétta héðan. Ég kláraði loksins þessar blessuðu ermar, búin að ganga frá endum og allt þannig að ég á bara eftir að þvo þær. Svo er stefnan tekin á berjamó í dag, svona áður en fer að frysta :)
Gaman að heyra frá ykkur, eða öllu heldur lesa frá ykkur ;)
Kv. Margrét