Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Loksins komin með Skype!!!

29. ágúst 2009 klukkan 09:53
Það var nú ekki erfitt að skella því upp....en ef þið viljið hringja í okkur í gegn um Skype þá finnið þið okkur með því að leita að: "Haukur og Sigga Norge".

Við fórum á loppemarket í gær og fundum æðislegan bekk sem tveir til þrír geta setið á, hann er hvítur með rimlabaki og lausri köflóttri sessu, ferlega flottur. Gott að hafa ef fleiri en fjórir vilja sitja við eldhúsborðið. Síðan fundum við ryksugu og tölvu/sjónvarpsborð fyrir Stefán, auk þess keypti ég tvær bækur. Allt þetta kostaði 475 NOK. Þetta var ferlega gaman, þessi markaður er haldinn í Ås arbeidskirke og stendur líka í dag og það var svo gaman að Haukur og Þórður fóru aftur og ég bíð núna spennt að sjá hvað þeir koma með.....

Varðandi hreyfingarmál mín þá hef ég tekið ákvörðun, ég ætla bara að hlaupa núna til að byrja með, hér er öll aðstaða til þess góð þ.e.a.s. hér er ekki endalaust rok;) Er ekki búin að setja upp plan annað en það að ég ætla að vera með markmið.
Nr. 1 er að geta hlaupið 5 km eftir 10 vikur
Nr. 2 er að geta hlaupið 10 km eftir 20 vikur
Nr. 3 er að halda þessu við
Nr. 4 er að hlaupa 1/2 maraþon í Reykjavík 2011 - þegar við verðum vonandi flutt heim

Síðan er aldrei að vita nema maður skelli sér á eitt og eitt námskeið til að styrkja sig en ég ætla bara að sjá til með það. Hlaup henta vel því þá get ég stundað þau á morgnana áður en ég fer í skólann, en samkvæmt stundaskránni þá er ég að byrja tvo morgna kl 8 og tvo kl 10 og svo er frí á föstudögum þannig að þá daga sem ég byrja kl 10 og svo föstudagar  væru góðir hlaupadagar. En ætli það sé ekki nóg að hlaupa þrisvar í viku, hvað segið þið hlaupadrottningar sem lesið þetta??? Silla systir gætir þú sent mér hlaupaprógrammið þitt, ég er búin að glata mínu, það virðist hafa gufað upp í flutningunum....???!!!

En af hverju er ég svona mikiðað spá í hreyfinguna núna, jú það er andleysi að hrjá mig núna en það er fylgifiskur hreyfingarleysis, í mínu tilfelli allavega. Síðan held ég að brauðátið á manni sé ekki að gera manni gott, þannig að nú ætla ég að fara að skera það við nögl og einbeita mér betur að gamla góða "danska" mataræðinu.

Jæja best að taka smá skurk í að læra og fara svo kannski í skógarferð seinna í dag.
Góðar stundir:)
 
Margrét
Líst vel á þetta hjá þér Sigga! Þú átt pottþétt eftir að standa þig vel í þessu hlaupaprógrammi, eins og öllu öðru :)
Sko...þótt ég muni seint flokkast sem hlaupadrottning þá byrjuðum við Ellý á hlaupaprógrammi í sumar (sem við ætlum reyndar að byrja á aftur þar sem það er stóóóóóóór munur á hlaupabrettunum á Kleppi og í Borgarnesi) og þar á maður að geta hlaupið 5 km eftir 9 vikur, þannig að 5 km eftir 10 vikur hjá þér er sko meira en raunhæft að mínu mati. :)

Gangi þér bara rosalega vel :)

Kv. Margrét
#1
29. ágúst 2009 klukkan 11:54
Það er náttúrulega skjól af öllum þessum trjám í Noregi.
Það var trjáskoðun með sveppaívafi um næsta nágrenni mitt, Eyrina, í morgun.
Ég kynnti neðanjarðarhagkerfi trjánna fyrir þátttakendum.
Hafðu það gott, Gyða.
#2
29. ágúst 2009 klukkan 21:16
 
Litla systir
Hæ Sigga mín, þú getur fundið hlaupaprógram sem hentar þér á þessum vef: http://hlaup.is/bullets_alpab.asp?cat_id=34

Knús og koss
#3
31. ágúst 2009 klukkan 09:09
 
Halla
Júbb hlaup þrisvar í viku er bara flott. Svo geturðu bætt öðrum æfingum inní eins og tími og orka leyfa eins og að synda, ganga eða hjóla. Aðrar æfingar eru þá bara plús í kladdann:)
#4
01. september 2009 klukkan 21:03
 
Ása D.
Hæ skvís,

þetta ætlar að verða eitthvað erfitt að hittast á msninu - en hlaupaprógrammið sem ég ætla að fara eftir núna (ætla að byrja frá 0 punkti aftur - þar sem ég held að ég hafi farið of geyst af stað - hef eiginlega ekkert hlaupið eftir Landmótshlaupið) - miðar einmitt við að maður fari upp úr sófanum - þ.e. úr nærri engri hreyfingu - í að hlaupa 5 km eftir 9 vikur - og það skemmtilega er að ef maður á ipod þá getur maður hlaðið þessu inn í hann - þá hlustar maður á tónlist (sem satt að segja mætti alveg vera pínu skemmtilegri en maður hlýtur að þola þetta) - og svo er rödd sem segir manni hvenær maður á að labba og hvenær hlaupa - alveg imbaproof ;o)

linkurinn að þessu er: http://www.c25k.com/

ég held það sé mjög gott að fara út þrisvar í viku - eru þetta mánu-, miðviku- og föstudagar hjá þér?? Ég VERÐ að fara að byrja líka - verð í fríi alla næstu viku - ætla m.a. á Skeiðin að gera smá verkefni - en það ætti að vera rosalega gott tækifæri til að koma mér af stað aftur - SPARK Í RASSINN!!!!

en svo verðum við að heyrast fljótlega á msn - ég verð með opið fyrir það á meðan ég er hjá Önnu Lísu í dag - þarf að segja þér stöðuna á verkefni vetrarins ;)

knúsímús.........Ása Dóra
#5
04. september 2009 klukkan 10:46

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.