Orkuleysi...
27. ágúst 2009 klukkan 21:05
...og þá er um að gera að fara að taka inn vítamín í massavís og finna sér einhverja markvissa hreyfingu til að stunda:) Já og huga að mataræðinu - ég ætla ekki að enda eins og hinn almenni norsari og borða brauð í næstum öll mál, maður lifandi hvað þeir borða mikið brauð púff!!!!
Var að skoða möguleikana sem ég hef hér í Ås en ég get valið á milli tveggja æfingastöðva GG-Hallen og Ås treningsenter. Ansi gott úrval en það er munur á verðinu, þannig að ég ætla að byrja á því að skoða GG-hallen en hún er rekin af SiÅs sem er sama dæmi og rekur nemendagarðana. Sýnist á öllu að ef ég borga 750 NOK fyrir hálft ár þá hef ég aðgang í alla tíma!!! En í Ås treningsenter kostar hálft ár 3500 NOK með aðgangi í alla tíma.....smá munur! En kannski er ég að misskilja eitthvað alveg svakalega. Haukur er mjög samviskusamur, farinn að skokka nokkrum sinnum í viku en hann hefði þurft að finna sér einhverja hópíþrótt til að hitta fólk í frítímanum (sko aðra en mig og strákana).
Annars er bara allt gott að frétta - dagarnir líða ótrúlega hratt hjá og september rétt handan við hornið. Þórður er aðeins farinn að tjá sig við konurnar á leikskólanum en gerir lítið úr því hér heima. Stefán lætur vel af sér í sínum skóla, á mánudaginn byrjar hann í norskukúrs sem er reyndar kenndur á skólatíma í "Voksneopplæringen" hér í Ås en það er eitthvað sem skólinn bíður honum og öllum "nýbúum" uppá. Þetta eru um þrír tímar fjóra morgna í viku og fer hann svo í skólann eftir þá. Annar strákur sem Stefán þekkir fer í þetta og við höldum að þetta sé málið - hann má svo hætta þegar hann vill eða er tilbúinn til.
Haukur hefur það fínt í vinnunni, þetta er ansi fjölbreytt sem hann fæst við; smíðar, bílaviðgerðir, plæging og margt fleira en svo er reyndar unglingur sem hefur lent öfugu megin í lífinu með þeim og það gengur svona lala.
Á morgun erum við að skila af okkur einu hópaverkefni með fyrirlestri - þýðir ekkert annað en að bíta á jaxlinn og láta vaða á norsku en þetta er svosem ekkert sem mér finnst ferlega erfitt, alls ekki. Þau hlæja þá bara af mér og mér er þá bara alveg sama;)
Helgin er lítð skipulögð fyrir utan það að við ætlum að einhvern svaka Loppemarked sem er árlega við Rustardskole hér í Ås, ætlum að horfa eftir hirslum fyrir strákana og kannski ljósum eða lömpum en það á allt eftir að koma í ljós muhahahah!
Síðan er það í deiglunni að fara að tína epli en ég veit um eplatré sem við megum tína af :) Þórði þykir þetta afar spennandi. Svo er aldrei að vita nema maður hafi með sér dall út í skóg og tíni aðalbláber en eins og allir vita þá er aðalbláberjalyng algengur undirgróður í furuskógum á Norðurlöndum, e.t.v. verð ég búin að kaupa mér matsveppabók og tíni einnig sveppi í matinn, hver veit. Síðan fer nú helgin í að undirbúa mig fyrir botanik próf sem er á mánudaginn en ég er reyndar ekki vitund stressuð fyrir það, ég var það en er ekki lengur. Fjölskylduferð út í skóg er líka ágætis undirbúingur fyrir slíkt próf.
Ég keypti eina ferlega sniðuga bók um daginn sjá hér en þarna eru útlistaðar allar helstu tegundir trjáa, lággróðurs, dýra, sveppa, skordýra og fugla í norskum skógum. Þetta er mjög sniðug bók í þægilegu broti sem liggur við að komist í rassvasann.
Læt þetta duga í bili, þakka kærlega fyrir allar kveðjurnar, það er gaman að sjá hvað fólk er duglegt að lesa bloggið en það er eins og vítamínsprauta - þannig að á meðan þið lesið, þá blogga ég:) Góðar stundir.

Sigga Júlla
jú þú skildir þetta rétt botanik er flóran:)
#2
27. ágúst 2009 klukkan 21:39
Silla
Flott hjá ykkur - það er matarklúbbur í Garðabænum annað kvöld og ykkar verður sko sárt saknað... en hafið það sem allra best!!!
Kv Silla.
Kv Silla.
#3
27. ágúst 2009 klukkan 22:06
Hafdís
Gaman að heyra að allt gengur vel hjá ykkur í Ås. Ég kannaðist við margt sem kom spánskt fyrir sjónir fyrstu daganna! Bestu kveðjur af Ströndum
#4
28. ágúst 2009 klukkan 10:29
Margrét
Oh, hvað maður er nú klár! :D
#5
28. ágúst 2009 klukkan 13:59
Gangi ykkur bara áfram vel og góða skemmtun í skógarferð, á flóamarkaðinum og í barasta öllu :D
Knús til allra!