Örblogg
25. ágúst 2009 klukkan 16:15
Var að setja inn myndir frá síðustu helgi inn á myndasíðuna, Það eru tveir hlekkir hér til hægri (í hlekkjasúpunni minni) sem báðir heita "Myndasíðan". Mappan heitir "20.-23. ágúst 2009" og þar er að finna myndir frá fyrsta skóladegi Stefáns, ferð í Tusenfryd og frá flugvélasýningunni í Rygge.
Hér er dagsskipulagið:
Klukkan hringir kl 6:20, þá er farið að smyrja nesti ofan í mannskapinn og morgunmatur. Haukur og Þórður Logi eru farnir úr húsi rétt fyrir 7, við Stefán leggjum svo af stað í okkar skóla klukkan 8. Síðan þegar líður á daginn förum við að týnast heim, Stefán er kominn um hálf þrjú, Haukur og Þórður milli fjögur og hálf fimm og ég er að koma heim svona á bilinu þrjú til sex, kom heim t.d. klukkan þrjú í dag en sex í gær.
Við reynum að borða á bilinu 5 til 7 en það fer allt eftir hvernig vinnst úr heimkomum;)
Þórður er kominn í rúmið fyrir átta og Stefán og Haukur kannski um tíuleytið - ég er hins vegar að gaufast eitthvað lengur en það er reyndar bara misjafnt.
Þvottamál:
Við þvoum þvottinn okkar í sameiginlegu þvottahúsi hér en erum að spáí að kaupa okkur þvottavél, held það borgi sig þegar maður er að stefna að veru hér í tvö ár. Ég borgaði t.d. 200 NOK inn á þvottavélakortið og núna eftir þrjár vikur á ég 65 kr eftir inn á því, þannig að það er líklega að fara svona ca 200 NOK á mánuði - á tíu mánuðum eru það 2000 NOK og það væri kannski hægt að finna þvottavél á 2-4 þúsund NOK.
Það er eitt ferlega sniðugt hér, það er vefsíða sem heitir Kelkoo.no þetta er svona neytendasíða þar sem maður getur leitað að hagstæðasta verðinu og eins og t.d. þetta að kaupa þvottavél þá getur maður leitað þarna og gefið upp þær forsendur sem maður vill, t.d. eftir verði eða merkjum.....sniðugt:) Svo þegar það er búið þá kemur niðurstaðan með verði og hvar hægt er að kaupa vöruna.
Jæja læt þetta duga í bili......

Anna Lóa
vildi bara segja kvitt kvitt. takk fyrir blogg :)
#1
25. ágúst 2009 klukkan 23:13