Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Mikið að gera....

23. ágúst 2009 klukkan 19:29
....og loksins blogga ég!!!
Í "utferd"-inni sá ég margt og mikið viðkomandi skógi eiginlega allt frá A til Ö. Eins og til dæmis; fórum við í gróðrarstöð sem framleiðir yfirleitt um 7 milljónir plantna á ári, sá nýgróðursettar greniplöntur eftir rjóðurfellingu, hitti bónda sem var að rjóðurfella, fór í timburfabriku og sá trjáboli verða að timburborðum (eins og maður kaupir í Byko), skoðaði útivistarskóg Drammenbúa og sá ummerki eftir skógareld sem var þar í fyrra. Þetta var afarfróðlegt en mikið óskaplega var ég þreytt á kvöldin, ég fór inn á herbergi og las frá ca 7 til 10 og þá fór ég að sofa - algjörlega búin á því. Mér fannst ég ekki skilja neitt, átti erfitt með að fylgja eftir en náði þó oftast þræðinum. Það gengur mikið betur að skilja það sem ég les heldur en að hlusta því mállýskurnar eru mjög breytilegar. Ég var því mjög fegin að komast heim á miðvikudaginn og geta talað við Hauk og strákana.

Stefán byrjaði í skólanum á fimmtudaginn og fór Haukur með honum því ekki komst ég vegna anna í skólanum, ég er þessa dagana alltaf frá 8 til 3 sem er mjög stíft núna í ágúst. Við vorum búin að kvíða þessari skólabyrjun lítið eitt og Stefán var búinn að mála skrattann á veggin fyrirfram sem bætti ástandið ekki og því akkúrat ekki með neinar væntingar. Hins vegar var hann bara kátur eftir þennan fyrsta dag. Hann er í áttunda bekk og er árgangnum skipt í fimm stofur og í stofunni hans Stefáns eru 29 krakkar EN tveir kennarar, sem mér finnst gott, hvor kennari með 14 eða 15 krakka. Það er annar "útlendingur" í bekknum pólskur strákur sem skilur ekki neitt í norsku þannig að Stefán er rólegur - hann er ekki einn á báti.
Á föstudaginn fór Stefán í skólann með nesti og nýja skó því farið var í gönguferð út í skóg en fyrsta vikan verður skilst mér svolítið á þessum nótum, til að krakkarnir kynnist. Það er nefnilega þannig að skólinn er bara fyrir 8.-10. bekk og þess vegna eru allir bekkjarfélagar Stefáns að byrja í nýjum skóla. Þetta er mjög þægilegt, skólinn byrjar klukkan 8:30 og er búin klukkan 14:10. Hann er í 4 stærðfræðitímum á viku, 5 norskutímum, 3 enskutímum, 3 fremmedspråk sem skiptist í núna fyrstu vikurnar á milli frönsku, þýsku og spænsku en svo mega þau velja sér hvaða mál þau lærar, síðan eru 3 náttúrufræðitímar, 3 samfélagsfræðitímar, 2 trúarbragðatímar, 3 íþróttatímar, 2 list og handavinna og 1 tónlistartími. Hver kennslustund er 45 mín. Síðan á Stefán rétt á íslenskukennslu og heimanámsaðstoð en við eigum eftir að fá á hreint hvernig það verður.

Nú höfum við kynnst fleiri íslendingum sem eru hér en það eru Ragnar og Hrafnhildur en við vissum alveg hver þau voru og höfum verið í smá sambandi við þau áður en við komum en höfum ekkert hitt vegna þess að þau hafa verið heima á Íslandi í fríi og einnig upptekin í vinnu, þau búa rétt hjá okkur og vilja allt fyrir okkur gera til aðstoðar. Hrafnhildur er að skirfa mastersritgerð og Ragnar á eftir ca 1 1/2 -2 ár af sínu námi.
Síðan hittum við Gunnu, sem er nú reyndar Skagfirðingur en hún er í doktorsnámi hér og hún er búin að bjóðast til að hjálpa Stefáni á kvöldin með heimanám ef á þarf að halda, vill semsagt allt fyrir okkur gera. Hrafnhildi og Ragnar voru Haukur og strákarnir búnir að hitta á meðan ég var í ferðinni en síðan buðu þau okkur í kaffi á föstudagskvöldið. Gunnu hittum við síðan í gær en við fórum öll saman í Tusenfryd (tívolíið) ásamt gestunum okkar sem komu á fimmtudaginn en það vorur Hvanneyringarnir Berglind, Sigtryggur og Óskar Óðinn.
Það er semsagt búið að vera fjör. Þau komu hingað um það leyti sem ég var búin í skólanum á fimmtudag, þau gistu á flatsæng í stofunni:) Á föstudaginn þvældust þau um og skruppu t.d. til Ski á meðan við vorum í vinnu og skóla. Seinnipartinn fórum við svo öll til Ski og fórum í keilu en það er algjör snilld, allir geta verið með og þótti drengjunum þetta æði. Í gær fegnum við svo útrás fyrir öskur og þá meina ég ÖSKUR!!! því við fórum í Tusenfryd og þvílíkt og annað eins. Ég byrjaði á því að skella mér í svaka rússíbana sem heitir Speedmaster og ó mæ god!!!! ég öskraði svo mikið að ég ég fékk í hálsinn og er ekki búin að jafna mig. Hugsaði um leið og tækisð spýttist af stað "hvern andskotann er ég búinn að koma mér í....!!!!" en sem betur fer tók þetta ekkert rosalega mikinn tíma en jé minn eini. Síðan var farið í timburrússíbana og einhvern splashrússíbana og endalaust, við vorum í 8 klukkutíma í tívolíinu og vorum eins og sannir íslendingar með nesti í bakpoka en keyptum okkur popp og ís til að gleðja mannskapinn enn meir:)
Ég tók hins vegar ákvörðun þegar ég var í Tusenfryd, það var að sleppa svakalegasta tækinu sem er nýlegt (var ekki hér 2007) sem heitir spinspider (eða eitthvað í þá veruna) ætla nefnilega í það næsta sumar þegar systkini mín koma og ætla ég að skora á þau - það er svakalegt tæki og rússíbanar eru bara barnaleikföng miðað við þetta. OG heyriðiþað!!!! Dagurinn í dag var tekinn rólega, reyndar skelltu Haukur og Stefán sér á flugsýningu á Ryggeflugvöll við Moss ásamt Ragnari og Sigtryggi á meðan við Berglind fórum í göngutúr með strákana og gáfum öndunum:)
Haukur skutlaði þeim síðan á Gardemoen um sexleytið.
Núna er ég stútfull af kvefi og er bara alls ekki góð, er þó ekki með einkenni svínainflúensu en hér er mikið talað um hana og búist við faraldri núna þegar skólarnir eru að byrja -  við erum á varðbergi og höfum einkennin í huga.

Læt þetta duga í bili, njótið vikunnar.

p.s. ný mappa á myndasíðunni hér til hægri - en þar eru myndirnar úr utferdinni:)
 
Margrét
Gaman að fá fréttir af ykkur :) Gott að Stefáni leist vel á skólann, og frábært að hann fær góða hjálp við heimanámið, svona á meðan hann er að komast inn í málið.
Ómetanlegt að hafa alla þessa íslendinga til að hjálpa manni með hitt og þetta þegar maður er að átta sig á hlutunum. :)

Svo, svona miðað við áskorunina, þá er ég ofboðslega fegin að vera ekki systir þín, Sigga mín...myndi ALDREI þora í svona tæki :D

Knús til ykkar allra!
#1
23. ágúst 2009 klukkan 19:47
 
Ellý
Það er greinilega nóg að gera hjá ykkur, frábært að allt gengur svona vel ;)
Það er rosalega gaman að lesa hvað þið eruð að bralla... en eruð þið eitthvað búin að hitta Stínu og family?

Gangi ykkur allt í haginn ;)
#2
23. ágúst 2009 klukkan 20:31
 
Sigga Júlla
Jú hittum þau um daginn og munum hitta þau bráðlega aftur, í síðasta lagi 1. sept en þá fáum við sófasettið sem þau redduðu okkur.
#3
23. ágúst 2009 klukkan 20:57
 
Jóna Rún frænka
Vó, er STefán Snær kominn í 8. bekk???? Mikið líður tíminn hratt! En gott að þú tilkynnir bloggfærslur á facebook, þá verð ég pottþétt duglegri að kíkja! Gangi ykkur rosalega vel í Noregi :) Kveðja, Jóna Rún

...já, hvað ertu aftur að læra? Ég var að ræða það við Rúnar frænda(bróðir pabba) um daginn og við gátum hvorug komið okkur saman hvað námið væri, giskuðum þó bæði á einhvers konar skógaræktarfræði eða eitthvað svoleiðis. Er það nærri lagi?
#4
23. ágúst 2009 klukkan 21:01
 
Edda
Nóg að gera á ykkar heimili, frábært að heyra að allt gekk vel hjá Stefáni. Allt nýtt og spennandi, bara gaman.
Æðislegar kveðjur í kotið til ykkar
#5
23. ágúst 2009 klukkan 21:26
 
Rakel
Gaman að lesa bloggið þitt og heyra um öll ævintýrin.
Og gott að heyra að allt gengur vel. Bið kærlega að heilsa Ragnari og Hrafnhildi.
Næst á dagskrá hér heima á Fróni er landsmót hjá Hérunum á morgun.
Bestu kveðjur til ykkar allra :-)
#6
23. ágúst 2009 klukkan 22:52
 
Þórunn Harðar
Gaman að lesa þetta Sigga mín og Tusenfryd er sannkallaður ævintýrastaður! En hvernig hefur Haukur það í vinnunni?? Eruð þið búin að fara á maísakur og tína ykkur maís? Þeir eru sjúklega góðir og hægt að borða þá ósoðna! Gott að heyra að Stefáni líst vel á skólann - ef hann er með kennara sem heitir Geir Martin þá er hann alveg frábær, hann kenndi Orra.
Knús og kossar til ykkar allra frá mér.

p.s. hlekkurinn á myndasíðuna þína virkar ekki :(
#7
23. ágúst 2009 klukkan 23:19
 
Sigga Júlla
Jóna ég er í mastersnámi í skógfræði.
Þórunn, Haukur hefur það fín t í vinnunni, mjög fjölbreytt starf og mikið að gera, hann verður bara að fara að blogga sjálfur um hana ;)
Ég held að maiisinn sé ekki tilbúinn - hér er ekki sérlega gott kornár núna vegna þurrka í vor og þ´vi ekki víst að það sé eins auðvelt að komast á akur. Kennararnir hans Stefáns heita Renate og Ellen.
Ég er með tvo hlekki á myndasíðuna annar er undir "skólinn vinnan og áhugamálin" hinn er undir "vinir og vandamenn" þeir virka báðir, allavega núna.....
#8
24. ágúst 2009 klukkan 05:18
Gaman að fylgjast með ykkur, ég get ekki beðið þangað til við komum næsta sumar!!! Ég skal sko fara með þér í alla rússíbanana og öll tækin;)
Við fórum í mat til Sillu í gær og Louisa leitaði af Þórði og spurði svo á leiðinni heim hvenar við ætluðum í heimsókn til hans og talaði mikið um það að nú ætti hann heima í útlöndum og hún þyrfti að fara í stóru flugvélina til að heimskja hann :)
Knús og kossar til ykkar :*

Kv. Heiða
#9
24. ágúst 2009 klukkan 18:43
Sæl Sigga Júlía, Sigvaldi kom við í gærkvöldi á leið sinni á mót landshlutaverkefnanna fyrir austan og lá bara nokkuð vel á honum.
Annars er ég á kafi í sveppum í augnablikinu.
Bless, Gyða
#10
24. ágúst 2009 klukkan 21:12
 
Sigga Júlla
Gott að heyra Gyða, hef haft dálitlar áhyggjur af karli.....
Góða skemmtun í sveppunum;)
#11
25. ágúst 2009 klukkan 18:22

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.