utferd á morgun
16. ágúst 2009 klukkan 14:39
Við fórum settumst út í garð í gærkvöld en það var þetta "festival" sem ég mundi bara kalla partý, við stoppuðum stutt, held að við séum ekki hér á sömu forsendum og margir nágrannar okkar. Það var spilað og sungið og djammað fram á nótt en við náðum að sofa þrátt fyrir það. Í morgun þegar ég kom fram og leit út í garð þá varð ég hneyksluð, fólkið hafði ekki haft fyrir því að hreinsa í það minnsta flöskurnar af borðunum - og við erum að tala um að garðurinn er ætlaður til leikja fyrir börn! Það er allt í lagi að fá sér í glas og gera sér glaðan dag en jeminn eini það er nú alveg í lagi að taka til eftir sig, held að fólk sé núna úti að myndast við að taka til (klukkan er að verða fimm)!!! Þetta fer smá í taugarnar á mér....vona að þetta gerist ekki oft.
Klukkan átta í fyrramálið legg ég af stað í "utferd" og kem ekki aftur heim fyrr en á miðvikudag. Ferðinni er heitið í Buskerud-fylki en ég er ekki alveg búin að átta mig alveg á því hvert nákvæmlega en ég veit þó hvar fylkið er....og veit að það verður endað í Drammen. Spennandi:)
Jæja ætla að fara að undirbúa kvöldmatinn, það verður soðin ýsa með kartöflum og smjöri mmmmmm!
p.s. klukkan hér á bloggar er auðvitað ekki á norskum tíma....

Hrefna Jóhannesdóttir
vona að þú eigir góða ferð til Drammen þó Norðmenn eigi orðtakið: Bedre en dramm i timen enn en time i Drammen... :)
#1
16. ágúst 2009 klukkan 19:06
Anna Lisa Hilmarsdottir
Sko Sigga titillinn á þessu bloggi er svolítið tvíræður hahahaha
Já það hafa alltaf verið mismunandi forsendur hjá skólafólki, ég hef alltaf verið í leiðinlega hópnum sem nennir ekki að djamma og djúsa ;)
Já það hafa alltaf verið mismunandi forsendur hjá skólafólki, ég hef alltaf verið í leiðinlega hópnum sem nennir ekki að djamma og djúsa ;)
#2
23. ágúst 2009 klukkan 09:58