Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Já SÆÆÆLL

13. ágúst 2009 klukkan 20:40
Vá hvað rigndi hér í gærkvöld, hef bara aldrei upplifað þvílíkt og annað eins. Þetta byrjaði allt voða vel, hér var yndisleg blíða í gær, við löbbuðum í "bæinn" og fengum okkur ís og vorum bara að dúllast. Síðan eftir kvöldmat fór að þykkna upp og þegar ég var inni að koma Þórði í rúmið byrjuðu þessar líka þrumur. Þetta stóð örugglega í góðan hálftíma með tilheyrandi úrhelli og eldingum, þetta var svo svakalegt að rafmagnið fór af!!! Kannski er þetta ekkert merkilegt fyrir þá sem hér búa en mér eða öllu heldur okkur þótti þetta alveg merkilegt.

Hér hringdi vekjaraklukkan klukkan hálf sjö í morgun og drifu þeir sig af stað í vinnu og leikskóla, Haukur og Þórður. Haukur sagði að Þórður hefði kvatt með trega og tárum í morgun en það lagaðist fljótt. Haukur fór svo í vinnuna og þessi fyrsti dagur gekk alveg ágætlega. Hann byrjaði með því að þeir hittust karlarnir og fengu sér kaffi og te, ræddu málin um verkefni dagsins (hálfgerð "Bút" stemming). Síðan fóru þeir Haukur og Eivind í búð til að kaupa skó og tvennar vinnubuxur, auk þess fékk hann; flíspeysu, þrjá T-boli og þrjár vinnupeysur. Mér finnst þetta alveg frábært, hann þarf s.s. ekki að skaffa nein vinnuföt á sig. Vinnudagurinn fór svo í smíðavinnu í enn einum leikskólanum sem þau Björg og Eivind eru að starta. Þetta fólk er með mörg járn í eldinum og eru greinilega alltaf að spotta út eitthvað sniðugt sem þau geta gert s.s. mjög atvinnuskapandi fyrir samfélagið.

Dagurinn hjá mér gekk alveg ljómandi vel, ég var meira að segja búin fyrr en stóð til í dag, sem kom sér vel því rétt eftir að ég kom heim, kom flutningabíll með DÓTIÐ OKKAR. Við Stefán vorum búin að bera dótið upp (með aðstoð Úlfs og Lydíu, nágranna okkar) og vorum komin langt með að taka upp úr kössum þegar Haukur og Þórður komu heim eftir langan og strangan dag. 
Þannig að það er einskonar jólastemming búin að vera hér. Ég held að ég geti fullyrt að sá sem var fegnastur að fá "dótið sitt" var Stefán Snær enda er hann búin að vera í essinu sínu hér í kvöld að sortera og skipuleggja herbergið sitt.

Stína frænka í Askim hringdi áðan og sagði okkur frá sófasetti sem við gætum fengið frítt og við ætlum að þiggja það, vitum reyndar ekki hve stórum hluta við komum hér inn en við sjáum til. Þetta er sko 3+2+1+sófaborð!!! Fáum það reyndar ekki fyrr en 1. sept en það er nú í lagi. Ástæðan fyrir þessari heppni er að Fredirik (tengdasonur Stínu) er að kaupa sér íbúð og manneskjan sem hann er að kaupa af er að hefja sambúð með annarri manneskju og eiga þau því tvennt af öllu og ætla sér að skilja eitthvað eftir í íbúðinni ef hann (Fredirik) hefði áhuga á að hirða það - hann var nú svo almennilegur að detta í hug að bjóða okkur þetta því hann á sófa - þannig að við græðum:)

Föstudagur á morgun.....ohhh hvað ég er fegin að það er að koma HELGI!!!!
 
Halla
Þurfti ekki hvort eð er að þvo bílinn? Gaman að heyra hvað allt gengur vel hjá ykkur og að hlutirnir séu að ganga upp:)
#1
13. ágúst 2009 klukkan 21:25
 
Elín Bergsdóttir
Hæ Sigga og fjölskylda

Mikið óskaplega er ég stolt af þér, að vera komin til Norge í þetta nám. Gaman að fylgjast með ykkur og frábært hvað ykkur gengur vel.
Ég er bara nýbúin að frétta af þessu bloggi (ég get verið svo utangátta, sorry) , en ég mun fylgjast með ykkur þarna úti.

Bestu kveðjur til ykkar allra

Elín
#2
14. ágúst 2009 klukkan 00:24
 
Tedda
Lítur greinilega allt vel út :) ... gott að dótið er komið, styttir Stefáni dagana sem hann er einn heima.
Knús :)
Tedda
#3
14. ágúst 2009 klukkan 07:55
 
Sú ráðagóða
Halló, halló, 3+2+1, það er nú gott og blessað þá getur maður komið og gist. Þessi 2 sæta passar öruggleg fyrir mína lengd. :)
Ég vissi alltaf að Þórður myndi rúlla þessu upp og Stefán gerir það örugglega líka. (Þeir eru nú komnir af svo frábæru fólki, ekki satt?)
Hafið það gott í útlandinu.
kveðja mamma
#4
14. ágúst 2009 klukkan 10:48
 
Steinunn
Gaman að sjá að hlutirnir eru að ganga upp og allt að gerast hjá ykkur,ekki slæmt að geta fylgst aðeins með ykkur á blogginu.Gangi ykkur vel elskurnar!!
Knús á línuna.
Kveðja af króknum.
#5
14. ágúst 2009 klukkan 14:17

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.