Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

heheheheh

12. ágúst 2009 klukkan 16:33
Hann er ótrúlegur hann sonur okkar. Hann fór í sína fyrstu heimsókn á leikskólann á mánudaginn, var skilinn eftir í klukkutíma í gær, í fjóra tíma í dag og á morgun ætlar hann að vera allan daginn!!!!
Haukur byrjar í vinnunni á morgun, þannig að það verðu einmannalegt fyrir aumingja Stefán....en sem betur fer er vika í að skólinn byrjar hjá honum.

Ég dó næstum úr hlátri í gær, þannig var að við vorum að spjalla við fólk hér úti og einhverra hluta vegna var verið að tala um bjór. Málið var s.s. það að ég frétti að þó bjórinn sé seldur í matvörubúðum þá má ekki selja hann eftir klukkan 20 á kvöldin og kl 18 um helgar. Hvert er point-ið með að setja svona lög spyr ég???

Ég hef ekkert minnst á fjölmenningarsamfélagið hér, hér á Skogveien býr fólk héðan og þaðan t.d. Marokkó, Indlandi, Kólumbíu, Senegal, Sómalíu og svo auðvitað norðmenn og íslendingar. Fyrir utan þjóðernið þá tilheyrir fólkið misjöfnum trúarhópum. Börnin leika sér saman hér í garðinum og það er alveg merkilegt hve mikill munur er á þeim í leik - verð ég að segja.......og það liggur við að ég sé að verða fordómafull eftir að hafa horft á leik sumra - ég ætla s.s. ekkert að fullyrða neitt en þetta eru börn sem e.t.v. eru komin frá stríðshrjáðum löndum sem hefur haft sín áhrif á þau EÐLILEGA.

Já eitt enn, við fórum áðan til Ski og keyptum gluggatjöld fyrir stofugluggann, þá er öllum gluggatjaldapælingum lokið. Dótið okkar kemur síðan á morgun og á laugardaginn verður farið í stofusófaleiðangur til Askim. Þó að ég sé búin að finna draumasvefnsófann í Ikea þá kostar hann alveg 5000 norskar sem er eins og gengið í dag tja 100-120 þúsund íslenskar.

Í kvöld verður horft á landsleik í fótbolta, Noregur-Skotland en í útvarpinu í dag hefur mikið verið talað um þennan leik og mikið líf í Osló nú þegar skotarnir eru mættir á svæðið:) 

Jæja læt þetta duga í bili - það gleður okkur óendanlega mikið hvað margir fylgjast með blogginu og vonum við að það haldi áfram;) 

Góðar stundir.
 
Margrét
Það er ekki að spyrja að honum Þórði Loga :) Hjálpar mikið hvað hann er opinn og ófeiminn...nú og svo er náttúrulega hún "Særún" þarna ;)

Sigga mín...það er svo bara ekki hægt annað en að fylgjast með blogginu þínu...fyrir það fyrsta þá vill maður nú forvitnast um hvað á daga ykkar drífur og því er algjört möst að lesa bloggið þitt :) Svo í öðru lagi þá ertu svo hrikalega skemmtilegur penni að það er frábært að lesa það sem þú skrifar...stóð mig að því í morgun að hugsa hvort þú ætlaðir ekki að fara að blogga bráðum aftur...fannst svo hrikalega langt síðan síðasta blogg kom ;)

Knús í kotið :)
#1
12. ágúst 2009 klukkan 16:47
 
Silla
Vá ég hef bara alveg gleymt að kíkka hérna inn og skammast mín hrikalega fyrir það (þökk sé facebook að ég sá nýtt blogg hehe)
En það er gott að allt gengur vel og Þórður ánægður sé ég, en þessi börn eru svo fljót að aðlagast, en Stefán er hann búinn að finna einhverja vini???
Gott að heyra fréttir
Kv Silla.
#2
12. ágúst 2009 klukkan 16:48
 
Ása D.
Rosalega er gaman að lesa um ferðina og flutningana ykkar út - ég vona sko heitt og innilega að ég komist í heimsókn til ykkar fljótlega - og aldrei að vita nema ég skoði skólann í leiðinni (væri nú svaka stór kostur að geta kíkt í kaffi og spjall af og til ;o))

gangi þér vel að finna svefnsófa handa mér heheheh.......

sólarkveðja frá Hvanneyri ;o)
#3
12. ágúst 2009 klukkan 17:15
 
Sissaa
Sá nemlig á facinu að þú ert með blogg, ákvað að kíkja inn og skoða. Við erum líka með blogg og það er í raun læst, þannig að ef þú vilt aðgang, kíkja á myndir og fleira þá endielga sendu mér línu á smk8@hi.is! ;)

En gaman að rekast á þetta blogg og geta fylgst með...........erum allt allt of léleg í því stórfjölskyldan að fylgjast með hvort öðru.......það er alveg á hreinu.

Verður gaman að kíkja hér reglulega og fylgjast með nýja lífinu ykkar í Noregi.......okkur langar MJÖG MIKIÐ að flytja út..........látum verða af því fyrr en seinna! ;)

Jæja hafið það gott og gangi ykkur vel.
Kveðja,
Sissa & co.
#4
12. ágúst 2009 klukkan 17:16
 
Tedda
Hæ elskurnar
Það er greinilega allt komið á fúll sving hjá ykkur ... bara gott að allt sé að komast í "fastar" skorður. Átti nú aldrei von á öðru en að Þórður rúllaði þessu upp :) ..og þið öll !! Vonandi verður Stefán fljótur að finna sér félaga þegar skólinn byrjar, gæti orðið strembin vika hjá honum framundan..."einn" heima. Hér rúllar allt við það sama, við Keli byrjuðum að helluleggja í gærkvöldi :) lítur bara rosa vel út. Plönturnar hjá mér virðast ætla að hafa þetta af .. hehe, svo þú sérð að það er allt á "uppleið" :) Strákarnir koma svo loksins heim um helgina... er farin að sakna þeirra ekkert smá. Veðrið er frábært alla daga ;)

Gangi ykkur sem allra best
Knús og kossar á ykkur öll.
Tedda
#5
13. ágúst 2009 klukkan 07:38
 
Litla systir
Hallo Norge!
Gaman að lesa bloggið þitt Sigga mín. Gott að heyra að allt gangi vel hjá ykkur.
Nú geri ég ekkert annað en að leita að ráðstefnum í Noregi, sem hugsanlega geta tengst mínu starfi....væri svooo gaman að koma til ykkar í smá heimsókn ;0)

Hafið það sem allra best, er með ykkur í anda.

Litla systir
#6
13. ágúst 2009 klukkan 16:05

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.