Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Dagurinn í dag.....

10. ágúst 2009 klukkan 19:00
.....hann gekk vel. Þórði leyst vel á leikskólann, þar voru allskonar leikföng sem honum líkar (gröfur, dráttarvélar og fl.) Á leikskólanum var að vinna eldri kona sem minnti Hauk á Særúnu á leikskólanum á Hvanneyri, þetta var eldri kona sem heitir Þórunn en hún er mamma Eivind sem Haukur er að fara að vinna hjá. Sko heimurinn er líka lítill hér í Noregi;)
Ég fór í skólann en þetta var nú eiginlega bara svona kynning á deildinni sem skogfag er kennt við en deildin heitir Institutt for naturforvaltning INA. Yfirmaður deildarinnar var með smá tölu og síðan komu námsráðgjafarnir og kynntu sig og við fengum að vita við hvert þeirra maður ætti að tala við varðandi skipulag námsins. Námið sem ég er í er heitir Masterprogram i skogfag. Aðalbyggingin sem ég verð í heitir Sörhellinga og er rosaflott, öll nýuppgerð og öll aðstaða til fyrirmyndar. Ég byrja í mínum fyrsta kúrsi í fyrramálið klukkan átta, en þarf reyndar að stinga af í einn klukkutíma til að hitta námsráðgjafann en það er allt í lagi;) Núna er bara tvennt sem kemur upp í hugann varðandi námið og ég ætla að hafa að leiðarljósi:
1. Hugsa eins og íþróttamaður. Ég verð að leggja mig 100% framm til að ná árangri, ég gæti alveg komist upp með að leggja mig 70% fram en þá nær maður engum árangri þegar fram í sækir - minnir að Eiður Smári hafi verið með þetta hollráð í "Strákunum okkar".
2. Ég hef engan annan til að treysta á í þessu námi nema sjálfa mig og þá er eins gott að hafa einbeitinguna í lagi. Þetta kemur frá Lilju Kristínu;)

Eftir skóla keyrðum við til Askim, til Stínu systur mömmu en hún var að koma frá Íslandi og var með sendingu til okkar frá mömmu, það var ferlega gaman. Við eigum sjálfsagt eftir að verða eins og gráir kettir hjá henni, stefnum t.d. á að fara þangað á laugardaginn næsta.

Við erum komin með norsk gsm númer og höfum lagt íslensku númerin á hilluna.
Haukur: 0047 96839587
Sigga: 0047 96839583

Heimasímanúmer fáum við þegar kennitölurnar verða komnar í hús.
 
Margrét
Gott að ykkur líst vel á ykkur þarna úti :) Gaman að geta fylgst svona með hvað á daga ykkar drífur, gangi ykkur vel með framhaldið :)

Knús frá okkur :)
#1
10. ágúst 2009 klukkan 19:23
 
Tedda
Hæ elskurnar... gott og gaman að heyra að allt er að ganga svona vel. Frábært að fá svona fréttir af ykkur til að lesa, því þá er eins og þið séuð aðeins "nær" manni :)
Bestu kveðjur héðan úr yndislegu morgunveðri á Hvanneyri.
Knús á ykkur öll :)
#2
11. ágúst 2009 klukkan 07:45
 
Stefanía
Smá kvitt frá okkur. Gott að þetta fer allt vel af stað :)
#3
11. ágúst 2009 klukkan 20:51
Þetta hljómar svo spennandi.... Liggur við að mig langi allt í einu í skógfræði.. Gangi ykkur vel..
#4
12. ágúst 2009 klukkan 13:12

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.