Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

ÅS

08. ágúst 2009 klukkan 20:46
Við lögðum af stað frá Gautaborg rétt fyrir klukkan níu, þriðjudaginn 4. ágúst. Rétt áður en við komum að landamærunum stoppuðum við í bæ sem heitir Nordby og fengum okkur hádegismat og keyptum vistir til nokkurra daga. Við vorum komin til Ås uppúr eitt, við keyrðum beint á Skogveien þar sem við hittum íslenska konu sem þar býr og hún rölti með okkur á skrifstofu SiÅs sem er apparatið sem sér um stúdentagarðana. Það var ekki mikið uppúr því að hafa nema eitt þvottavélakort með 200 kr inneign (sko í norskum), lyklarnir voru semsagt ekki til taks þar sem síðasti leigjandi hafði ekki skilað lyklunum fyrr en daginn áður og það þurfti að laga ýmislegt áður en við gætum flutt inn. Íslenska konan bauð okkur gistingu því það var ekkert spennandi að tjalda þennan dag, allt rennandi blautt eftir vænan rigningardag. Við tókum þess í stað smá göngutúr um svæðið, fórum í REMA 1000 og keyptum pylsur og slegið var upp pylsuveislu. Þennan dag notuðum við einnig tækifærið og spottuðum út eina eldavél en hér eru íbúðirnar leigðar án eldavélar og ísskáps. Á miðvikudagsmorguninn var okkar fyrsta verk að keyra til Ski til að sækja um kennitölur, það gekk ágætlega og komum við einnig við í Rúmfatalagernum og í Ski storsenter þar sem við fengum okkur hádegismat. Eftir hádegið fengum við lyklana að íbúðinni og sváfum við í svefnpokum á tjalddýnum þessa fyrstu nótt okkar hér í þessari ágætu íbúð.
Fimmtudagsmorguninn rann upp ljómandi fagur. Ég fór og gerði tilraun til að skrá mig og fá skólaskírteini og svoleiðis en obbobbobb, ég var ekki skráð í kerfið hjá þeim!!!! Strákurinn sem afgreiddi mig hringdi í einhverja skrifstofu og kom þá í ljós að ég var alveg skráð inn en ekki inní þetta tiltekna kerfi...æi nó big díl ;) Mér var sagt að ég fengi póst þegar þetta væri frágengið og ekkert mál, var þá ákveðið að skella sér í IKEA og kaupa rúm, eldhúsborð og stóla og eitthvað eldhúsdót, svona til að komast af. Ferðin gekk vel, held við höfum gert met, því þetta tók ekkert langan tíma, lögðum af stað um hálf tólf og vorum komin hingað á Ås fyrir fjögur NB við vorum búin að skoða allt á netinu áður en við fórum og vissum því hvað við ætluðum að fá. Eftir IKEA ferðina hittum við væntanlega vinnuveitendur Hauks en þau voru að vinna hér í Ås og því lítð mál að hitta þau í smá stund. Þegar því var lokið brunum við næstum alla leið til Ski í lítið fyrirtæki sem heitir "Brodin service" sem sérhæfir sig í að taka notuð Asko raftæki í gegn og selja aftur, við fengum þennan fína 175 sm ísskáp á 2500 kr norskar sem telst mjög gott verð því hér snobba allir fyrir Asko! Kvöldið fór svo í að setja saman rúm, borð og stóla og já Billy bókahillur (má ekki gleyma þeim)!!!
Föstudagurinn var tekinn nokkuð snemma, ég fór og gerði aðra tilraun til að skrá mig og fá skírteini en ég hafði fengið póst seinnipartinn á fimmtudaginn að id númerið mitt væri klárt. Þetta gekk allt eins og í sögu, nema hvað myndin var herfileg, ég í svitamóki því hitinn fór í 28 gráður þann daginn! Síðan tóku strákarnir í "datatjenesten" tölvuna mína og settu upp F-security og aðstoðuðu mig að skrá tölvuna mína inn þannig að nú er komin tölvutenging í íbúðina, auk þess er þráðlaust net á Campusnum. Eftir þessa skráningarvinnu alla saman var ég komin með aðgang að mínu svæði þar sem ég get fengið póst, valið kúrsa og fylgst með tilkynningum (svona eins og skoli.is eða webCT á Íslandi). Þegar þessu var lokið og við búin að sitja á svölunum og sóla okkur var stefnana tekin til Ski storsenter og keyptum við sængesett á tilboði 299 kr stk en hver pakki innihélt sæng, kodda og sængurver. Við sendum nefnilega sængurnar okkar ekki út því þær voru allar á síðasta snúning nema sængin hans Þórðar. Við versluðum einnig gardínur fyrir herbergisgluggana. Það eina sem við eigum eftir að redda okkur í íbúðina er sófi, helst svefsófi í stofuna, gluggatjöld fyrir stofuna og ljós yfir eldhúsborðið - ekki slæmt eftir aðeins fjóra daga???
Núna er laugardagskvöld allt orðið dimmt og drungalegt úti (það er sko engin flóðlýsing hér) eftir alveg frábæran dag, við tókum því rólega sátum úti, fórum í göngutúr og hittum fólk sem býr hér - allir eru mjög yndislegir og vilja allt fyrir mann gera, ég kvarta ekki. Undir kvöld fórum við í bíltúr til Dröbak og var erindið að finna staðinn þar sem Stefán getur sennilega stundað badminton í vetur.
Varðandi skólann þá byrja ég á mánudaginn en það er aðallega kynning á institutinu og svo farmvegis en á þriðjudag byrja ég í ágústblokk og verða næstu þrjár vikur skóli alla daga frá 8 til 15.
Haukur verður að sjá um strákana, Þórður byrjar í aðlögun á leikskólanum á mánudag og svo er skráning í skólann hjá Stefáni þann 19. og svo byrjar hann á fullu þann 20. ágúst - það verður semsagt í nógu að snúast og mikið álag framundan og þá eins gott að vera JÁKVÆÐUR ;)
Á morgun ætlum við til Svíþjóðar......jebb, kaupa kjöt, ost og pakkavöru ýmiskonar fyrir næstu tja... þrjár vikur;)
Eitt enn í lokin, ef þið ætlið að senda okkur eitthvað með bréfpósti þá er utanáskriftin svona:
Sigridur Julia Brynleifsdottir
Postbox 401
1432 Ås
Norge
Ef Haukur eða strákarnir eiga að fá póstinn þá megið þið skrifa þeirra nafn en mitt veður helst að koma líka t.d. c/o Sigridur Julia Brynleifsdottir

Góða nótt !
 
Margrét
Gaman að heyra að allt gengur vel :) Þið eruð ekkert smá aktív í innkaupunum, gott að vera skipulagður ;)
Gangi ykkur bara rosalega vel með framhaldið, hlakka til að heyra meira um hvernig gengur :)

Knús frá okkur í Sóltúninu :)
#1
08. ágúst 2009 klukkan 23:43
Vá... Frábært að lesa þessar bloggfærslur... Þetta gengur greinilega bara ljómandi vel hjá ykkur.... En er sammála þér með dónaskapinn í konunni með boxið.... Arrrggg... Og að láta lögguna banka upp á hjá sér á leið úr landi er náttúrulega skandalll... Frat á Lýsingu..
Var svefnsófinn "minn" ekki til í Ikea?
Bestu kveðjur frá Hvanneyri
#2
10. ágúst 2009 klukkan 14:34

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.