Æi hvað það er gaman að lesa þetta :) fyrir utan auðvitað þessar uppþornuðu kerlingar þarna fyrir sunnan ;(
Gott að ferðin gekk svona vel og að þið höfðuð nokkra góða ættingja með á bryggjuna :)
Til hamingju með þann 4 ára og brúðkaupsafmælið og bið að heilsa körlunum þínum
ég fylgist með
kv Anna Lísa
Hvanneyri - Seyđisfjörđur - Danmörk - Gautaborg
08. ágúst 2009 klukkan 11:53
Jæja gott fólk þá er komið að því - fyrsti hluti ferðasögunnar!
Við yfirgáfum Hvanneyri þann 1. júlí sl, vorum þá búin að standa í ströngu við undirbúning flutnings og sölu á íbúðinni okkar, já og klára vinnuna okkar.
Við fórum norður í Skagafjörð n.t.t. Marbæli í Óslandshlíð æskuheimili Hauks og höfðum þar bækistöðvar í þrjár vikur. Það sem við afrekuðum þessar vikur var: Haukur fór á pollamótið á Akureyri, við strákarnir vorum bara að dúllast á Marbæli á meðan því daginn áður en við fórum frá Hvanneyri fékk Þórður hlaupabóluna. Við fórum norður í Eyjafjörð í bústað með Sillu og Gumma 7. júlí og vorum þar í fimm daga - bæra gaman, við kíktum á Landsmótið á Akureyri þar sem Haukur var einn af dómurunum í dráttarvélaakstri. Eftir Landsmótið komu til okkar gestir á Marbæli, það voru Tedda og strákarnir og Keli og Inga sem varð sextug um þetta leytið. Við fengum semsagt heimsenda afmælisveislu. Eftir að þau voru farin tóku við raðirnar af kveðjuveislum og miðvikudaginn 22. júlí löggðum við af stað austur á Egilsstaði í fylgd Gumma og Sillu. Við gistum hjá Diddu frænku en Árni og Sigga keyrðu með okkur yfir á Seyðisfjörð vegna þess að það kom upp smá babb í bátinn!!! Og hér kemur smá saga:
Þegar við vorum á leiðinni norður frá Hvanneyri, ræddum við Haukur um allt dótið sem við værum með og þyrftum að hafa með okkur út í bílnum (vorum nefnilega með útilegubúnað til öryggis) - þá ákvað Haukur að líklega væri bara best að kaupa það hallærislegasta sem hann veit um TENGDAMÖMMUBOX!!!!! Jebb Þórunn og Berglind hann lét sig!!! Það var fjárfest í því á Akureyri og fékk ég það hlutverk að hringja í Norrænu til að breyta bókuninni því bíllinn hefði hækkað - ég gleymdi því óvart eða réttara sagt trassaði það þar til daginn áður en við áttum að sigla af stað þá gafst Haukur upp og hringdi, þar svaraði kona sem var ekkert nema leiðindin og sagði að vð kæmumst ekki með á hærri bíl, hæðin mætti max vera 190 cm (bíllinn var orðinn 195 cm) og það væri allt fullt!!! Jebbs, nú voru góð ráð dýr, þegar við komum á Egilsstaði fórum við í mat til Árna og Siggu og með hjálp Árna og verkfræðingsins vinar Árna var TENGDAMÖMMUBOXIÐ tæmt og því troðið inn í bílinn. Svo er við þetta að bæta að ég hef nú bara aldrei annan eins dónaskap eins og hjá þessari konu hjá Norrænu því þegar Haukur keyrir inn í skipið þá var minnsta kosti 3 m lofthæð og bílar mikið hærri en okkar í stæðunum í kring!!!
Annað vandamál sem við þurftum að leysa: Við vorum með bílalán á bílnum sem við vissum að við þyrftum að greiða upp áður en við færum, eins og ég hef áður sagt þá seldum við íbúðina okkar og fáum lokagreiðslu 1. sept og spurningin var þá hvort þeir hjá LÝSINGU gætu séð í gegn um fingur sér og við fengið að fresta uppgreiðslu þar til 1. sept..... NEI! EKKI TIL AÐ TALA UM, við voruym bara aumingjar sem vorum að flýja ástandið heimaog við gátum sko alveg fengið okkur yfirdrátt í þennan tíma NÆS!! Ok við gerðum það og hún Hrönn (þjónustufulltrúinn okkar) reddaði því en þá vorum við ekki komin með nýtt skráningar skírteini á bílinn því auðvitað gerðum við þetta daginn áður en við vorum að fara til að spara yfirdrátt. Á bryggjunni á Seyðisfirði þegar við erum búin að skkrá okkur inn og allt í gúddí, Haukur í röðinni með bílinn, koma tveir svartklæddir menn og rífa upp hurðina hjá honum og segja...Hva er bara verið að flýja land á bílnum??? Helvítis DÓNARNIR - en svo sáu þeir nú að það var allt í góðu, við búin að borga upp lánið en Haukur varð að hringja í Odd vin sinn til að redda þessu skráningarskírteini.
Lærdómur:
Ég lýsi frati á konur sem vinna á skrifstofum í Reykjavík og hafa ekki hugmynd um hvað þær eru að segja og eru bara DÓNAR. Held það væri allt í lagi að innleiða fleiri námskeið um mannleg samskipti og hvernig maður kemur fram við fólk!
Ég lýsi frati á LÝSINGU!
Jæja, eftir að hafa kvatt alla með tilheyrandi tilfinningaflóði á bryggjunni hófst mikið ævintýri sem ekki er séð fyrir endann á.
Við höfðum það ágætt á siglingunni þó þetta sé nú ekki skemmtilegasti ferðamátinn þá er þetta okey. Til Danmerkur komum við laugardaginn 25. júlí og við keyrðum rakleiðis í Vejlefjörðinn þar sem okkar beið æðislegt sumarhús þar sem stutt var á strönd og sjoppu!
Elva æskuvinkona mín að norðan kom til okkar og var hjá okkur í þrjár nætur það var yndislegt að ná svona góðum tíma með henni. Við keyðrum aðeins um fórum til Fredericia og Vejle og einnig eyddum við einum degi í Löveparken. Við vorum í viku í þessum bústað í Danmörku og 1. ágúst lögðum við af stað til Gautaborgar.
Við gistum hjá Júlíu Rós (frænku Hauks) og Harrý í þrjár nætur, það var yndislegur tími. Fórum í tívolíð, heimsóttum eitt moll (femman) og þar sem Þórður var 4 ára í Gautaborg sló Júlía Rós upp veislu, eldaði uppáhaldsmat Þórðar (hakk og spagetti) og bjó til æðislega bangssímon köku. Eftir veisluna var farið í leikjaland og þar á eftir var boðið upp á sjeik og ís.
Þriðjudaginn 4. ágúst (brúðkaupsdaginn okkar) lögðum við af stað til Noregs. Set inn aðra færslu um það á morgun;)

Anna Lisa Hilmarsdottir
#2
08. ágúst 2009 klukkan 14:38
Ţórunn Harđar
Ja hérna - þetta hefur aldeilis verið viðburðaríkt og stressandi fyrir ykkur að lenda í slíku á Íslandinu góða þar sem vaninn er að allir reddi öllu og ekkert sé neitt mál.... því að nú fenguð þið held ég bara góða aðlögun að því sem koma skal! Í Noregi er regluverkið þvílíkt og allt fullt af svona uppþornuðum leiðindakerlingum á skrifstofum sem eru í fullu starfi við að gera vesen úr smámunum . . .
Knús, knús, knús á línuna frá okkur öllum hér :D

#3
08. ágúst 2009 klukkan 18:23
Annars finnst mér mjög skrýtið hvað Lýsing er lítið ósveigjanlegt fyrirtæki. Maður hefði haldið að fyrirtækið hefði grætt nóga peninga á undanförnum árum þannig að það geti gefið smá séns hér og þar....þó það væri ekki nema til þess að fá gott umtal. Lýsing er væntanlega eitt hataðasta fyrirtækið á Íslandi í dag.
En til hamingju með að vera komin á áfangastað! Kær kveðja til allra!!
Herdís og co