Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hvað segið þið um eitt blogg??

02. júlí 2009 klukkan 17:45
Jæja þá erum við komin norður í fjörðinn fagra þar sem við verðum með aðsetur næstu þrjár vikurnar. Já það eru þrjár vikur þangað til við siglum úr höfn á Seyðisfirði á vit ævintýranna.
Við skrifuðum undir kaupsamning á mánudag og afhendum lyklana í gærmorgun. Nú eigum við ekki heima á Hvanneyri....skrítið að keyra burt frá staðnum sem hefur verið heimili okkar síðustu ...tja (næstum) tíu árin! Þórður á mjög erfitt með að skilja þetta, "hvar eigum við heima mamma?" spyr hann. Þá er að útskýra fyrir honum að við eigum heima í sveitinni í smá tíma áður en við förum til Noregs en þar ætlum við að eiga heima í tvö ár. Hvað verður svo kemur bara í ljós síðar meir.

Við komum semsagt hingað seinnipartinn í gær og höfum bara verið að koma okkur fyrir og útrétta. Ég ætla að stunda æfingar með Sillu sys þennan tíma sem við verðum hér en hún er með nokkrar konur í hlaupaprógrammi. Á morgun og laugardag ætlar Haukur að keppa á Pollamóti Þórs á Akureyri og reikna ég með að fylgjast eitthvað með því en Stefán Snær er mjög spenntur yfir að komast þangað, veit ekki hvort það er áhugi á fótbolta eða einhverjar verslanir sem hann sækist í.....held þetta síðarnefnda.
Hvernig sem þessar Akureyrarferðir verða þá er mitt helsta markmið að hitta ömmu gömlu, fá mér Brynjuís, kíkja í Listigarðinn og jafnvel í Kjarnaskóg. Síðan á ég nokkrar vinkonur sem gaman væri að hitta......

Læt þetta duga í bili, lofa bloggi eftir nokkra daga - er nefnilega ekki með netið í sveitinni, sit núna til dæmis á kennarastofunni í grunnskólanum á Hólum.

Njótið lífsins Smile
 
Rakel
Arg........verð á ættarmóti í Ólafsfirði frá föstudegi til sunnudags.
En stefni á hitting áður en þið farið.
Verðum í bandi
kv
Rakel
#1
02. júlí 2009 klukkan 20:28
 
Berglind
hehe verð í skagafirði um helgina, en þá ferð þú bara enn lengra!!!
hafðu það gott í fríinu þínu
#2
03. júlí 2009 klukkan 09:52
 
Heiðdís
Þetta er ótrúlega spennandi hjá ykkur og þvílíkur dugnaður að rífa sig svona upp og halda í óvissuna ;o) Ég er viss um að það verður BARA góð lífsreynsla og hlakka til að fylgjast með ykkur.
#3
04. júlí 2009 klukkan 21:57
 
Anna Lóa
Sæl, gott að heyra að allt gengur vel hjá ykkur : ) Fylgist spennt með afdrifum ykkar, já ég er sammála að það er skrítið að þið eruð flutt burt:( Venst illa að sjá ekki bílinn ykkar í innkeyrslunni á Túngötu 19. Finnst að þið eigið heima þar og enginn annar. En lífið heldur áfram og tímar breytast:) Hafið það gott og gangi ykkur vel :) Bestu kveðjur frá okkur Kjartani Ottó: )
#4
14. júlí 2009 klukkan 19:52

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.