Stađan í dag....
26. júní 2009 klukkan 13:35
Í dag er síðasti vinnudagurinn minn hjá Vesturlandsskógum, ég kveð starfið með söknuð í hjarta og vona ég að skógar- og skjólbeltabændum á Vesturlandi eigi eftir að farnast vel í framtíðinni.
Húsið er eiginlega orðið tómt en heilmikil vinna er eftir við þrif og annan frágang.
Við fengum tilboð í húsið og skrifað verður undir kaupsamning á mánudaginn, þann dag förum við einnig með það litla dót sem við flytjum með okkur til Noregs, suður og stöflum á bretti.
Stefnan er svo að keyra norður í fjörðinn fagra á þriðjudagskvöld eða á miðvikudagsmorguninn, þar sem við verðum í þrjár vikur.
Við erum búin að leigja okkur hús á Jótlandi í eina viku (frá 25. júlí) og svo verður stefnan tekin á nokkra daga í Svíþjóð og svo fáum við íbúðina í Ås 5. ágúst.
Læt þetta duga að sinni - sjáumst eða heyrumst, lofa bloggi af og til

Knús, Margrét