Hnjúkurinn fer ekki neitt, alltaf hægt að príla upp á hann seinna :)
Góða skemmtun um helgina :D
Labbakútafélagiđ
12. júní 2009 klukkan 09:33
Labbakútafélgið sem er félag göngufólks sem vinnur hjá ýmsum stofnunum sem eru til húsa að Hvanneyrargötu 3, ætlar í ferð í dag.
Skipulagið er þannig að við mætum ásamt mökum og börnum að Snorrastöðum núna seinnipartinn í dag og göngum á Eldborg, á eftir förum við í heitu pottana og grillum og höfum gaman. Þetta verður örugglega mjög gaman og veðurguðirnir virðast ekki ætla að svíkja okkur, sól og blíða í kortunum
Sumir ætla að tjalda og gista en við ætlum heim, því það er margt annað á döfinni þessa helgi.
Á morgun förum við norður með kerru fulla af dóti, kíkjum í sextugsafmæli Jónu (frænku Hauks) gistum hjá Sillu sys og förum á lítið ættarmót í hádeginu á sunnudag. Semsagt nóg að gera
Mér var boðið á Hvannadalshnjúk um helgina.......ákvað eftir smá umhugsun að sleppa því og fara síðar þegar minna álag er á mann því maður fer ekki í svona krefjandi göngu nema slakur (er aðeins farin að stressast upp vegna allra breytinganna).....en það er nú ósköp eðlilegt
Skipulagið er þannig að við mætum ásamt mökum og börnum að Snorrastöðum núna seinnipartinn í dag og göngum á Eldborg, á eftir förum við í heitu pottana og grillum og höfum gaman. Þetta verður örugglega mjög gaman og veðurguðirnir virðast ekki ætla að svíkja okkur, sól og blíða í kortunum
Sumir ætla að tjalda og gista en við ætlum heim, því það er margt annað á döfinni þessa helgi.Á morgun förum við norður með kerru fulla af dóti, kíkjum í sextugsafmæli Jónu (frænku Hauks) gistum hjá Sillu sys og förum á lítið ættarmót í hádeginu á sunnudag. Semsagt nóg að gera

Mér var boðið á Hvannadalshnjúk um helgina.......ákvað eftir smá umhugsun að sleppa því og fara síðar þegar minna álag er á mann því maður fer ekki í svona krefjandi göngu nema slakur (er aðeins farin að stressast upp vegna allra breytinganna).....en það er nú ósköp eðlilegt
Margrét
#2
12. júní 2009 klukkan 14:18
Mér finnst nú oftast best á jafnsléttu.
Gangi þér vel í undirbúningnum, Gyða