Hvítasunnan framundan
29. maí 2009 klukkan 15:26
Kveðjupartýið gekk eins og í sögu, það var mikill hávaði og mikil læti en sem betur fer voru veðurguðirnir með mér í liði því sólin skein og allir því mestmegnis úti við.
Í dag var svo síðasti skóladagurinn hjá Stefáni Snæ. Við förum svo norður á morgun með fulla kerru af dóti og Stefán Snær verður eftir fyrir norðan, í vinnu hjá ömmu sinni.
Það hefur verið í nógu að snúast í vinnunni en ég kom að því að setja út tilraun í hraðframleiðslu jólatrjáa og var því útivið í gær og fram að hádegi í dag. Get ekki líst því hvað það er frábært að komast út í slíka vinnu, þrátt fyrir rok og rigningu - þetta er svo GAMAN. Þetta er 10-12 ára tilraun sem jákvæði prófessorinn er með á sínum snærum og vorum við nokkur sem komum að útsetningu hennar (segir maður þetta ekki þannig?)
Annars gengur allt alveg ágætlega, allt er að ganga upp varðandi flutningana og ég sé fram á að geta unnið til 24-26. júní svona ca.
Ég hef nú ekki verið að standa mig sem skyldi í reglulegri hreyfingu en það er búið að vera nóg að gera. Haukur hefur verið að fara í vinnu mjög snemma á morgnana undanfarið og þá hef ég sleppt hreyfingunni. Hins vegar ætla ég að byrja að fara eftir 8 vikna hlaupaprógrammi sem vinkona mín var að senda mér en það passar því síðasta vikan klárast þegar ég verð um borð í Norrænu og þar er hlaupabretti
Löng helgi framundan.
Í kvöld förum við í útskriftarveislu til Berglindar og Sigtryggs en þau voru að ljúka við masterinn - TIL LUKKU MEÐ ÞAÐ
Við förum svo norður á morgun (eins og áður sagði) með fulla kerru af dóti, á sunnudag ætla ég að hjálpa foreldrum mínum að gróðursetja (vonandi eru plönturnar komnar) og við komum svo heim annaðhvort á sunnudagskvöld eða á mánudag.
Góða helgi allir!
Í dag var svo síðasti skóladagurinn hjá Stefáni Snæ. Við förum svo norður á morgun með fulla kerru af dóti og Stefán Snær verður eftir fyrir norðan, í vinnu hjá ömmu sinni.
Það hefur verið í nógu að snúast í vinnunni en ég kom að því að setja út tilraun í hraðframleiðslu jólatrjáa og var því útivið í gær og fram að hádegi í dag. Get ekki líst því hvað það er frábært að komast út í slíka vinnu, þrátt fyrir rok og rigningu - þetta er svo GAMAN. Þetta er 10-12 ára tilraun sem jákvæði prófessorinn er með á sínum snærum og vorum við nokkur sem komum að útsetningu hennar (segir maður þetta ekki þannig?)
Annars gengur allt alveg ágætlega, allt er að ganga upp varðandi flutningana og ég sé fram á að geta unnið til 24-26. júní svona ca.
Ég hef nú ekki verið að standa mig sem skyldi í reglulegri hreyfingu en það er búið að vera nóg að gera. Haukur hefur verið að fara í vinnu mjög snemma á morgnana undanfarið og þá hef ég sleppt hreyfingunni. Hins vegar ætla ég að byrja að fara eftir 8 vikna hlaupaprógrammi sem vinkona mín var að senda mér en það passar því síðasta vikan klárast þegar ég verð um borð í Norrænu og þar er hlaupabretti

Löng helgi framundan.
Í kvöld förum við í útskriftarveislu til Berglindar og Sigtryggs en þau voru að ljúka við masterinn - TIL LUKKU MEÐ ÞAÐ
Við förum svo norður á morgun (eins og áður sagði) með fulla kerru af dóti, á sunnudag ætla ég að hjálpa foreldrum mínum að gróðursetja (vonandi eru plönturnar komnar) og við komum svo heim annaðhvort á sunnudagskvöld eða á mánudag.Góða helgi allir!