Kveðjupartý Stefáns Snæs
26. maí 2009 klukkan 15:47
Er einhver með góða hugmynd að leik sem hægt er að fara með 15-20 unglinga í??? Málið er að Stefán Snær býður bekknum sínum og nokkrum vinum í kveðjupartý eftir skóla á morgun og vonast ég til að veðrið verði skaplegt þannig að þau geti verið sem mest úti. Ætlunin er að bjóða upp á grillaðar pylsur og tilheyrandi og svo er spurning að finna uppá einhverju skemmtilegu til að gera......
Síðasti skóladagur Stefáns Snæs þetta árið er næsti föstudagur, síðan förum við norður á laugardag og þá kveðjur Stefán Snær Hvanneyri - hann ætlar nefnilega að vinna allan júní hjá ömmu sinni í gróðrarstöðinni Laugarmýri í Skagafirði og planið er semsagt að hann komi ekkert meira hingað á "Eyrina" í sumar.

Margrét
Það á reyndar að vera ágætis veður á morgun, en ef allt þrýtur þá á Guðrún Þórey allt sem þarf í bingó og væri örugglega til í að lána það :)
#1
26. maí 2009 klukkan 17:09