Ótrúlegt að þetta sé bara að bresta á! "Síðasta mánuðinn á Hvanneyri"!!! Úff! Ykkar verður sárt saknað, en tek undir með Önnu Lísu að maður samgleðst ykkur þvílíkt!
Kv. Margrét
smá spjall......
24. maí 2009 klukkan 22:03
Alveg er það makalaust hvað veðurblíðan hefur leikið við okkur í maí, það er enn vika eftir og allur gróður kominn á fullt. Við Þórður Logi rótuðumst í beðunum í dag og fer garðurinn að taka á sig einhverja mynd, get nú ekki leigt út húsið með druslulegan garð. Í vikunni sem leið kom Valdi nágranni okkar með keðjusög og sagaði mikið af viðjunni eða niður í ca 120 cm en þannig vil ég hafa hana - fyrst hún er þarna (þoli ekki víðihekk inní görðum) en markmiðið er að birkið sem er utan við fái að njóta sín og verði meginskjólgjafinn í garðinum.
Á föstudagskvöldið skruppum við norður með fulla kerru af bókakössum en búslóðin verður í geymslu í Skagafirðinum svona fyrir utan það sem vinir hér ætla að passa. Við gistum hjá Sillu og Gumma og stútuðum við systur einni rauðvínsflösku sem verður nú varla talið til frétta ............
Í gær skrapp ég svo með mömmu og Sillu í Laugarmýri þar sem þær versluðu sér sumarblóm og Silla keypti sér trjáplöntur. Verð nú að segja að það er frekar skrítin tilfinning að vera ekki að kaupa sér sumarblóm en mikið óskaplega klæjaði mig í fingurna.
Við komum svo heim seint í gærkvöld þannig að eins og áður sagði nýttist dagurinn vel til garðvinnu.
Framundan er annasöm vika í vinnu og einnig hér heima en við stefnum á að fara norður um næstu helgi með fullt af dóti þannig að síðasta mánuðinn hér á Hvanneyri verðum við í hálf tómu húsi.
....ég vonast einnig til að komast í gróðursetningu um Hvítasunnu hjá mömmu og pabba.....þó ekki verði nema í einn dag þá verð ég glöð
Njótið vinnuvikunnar sem er framundan.
Á föstudagskvöldið skruppum við norður með fulla kerru af bókakössum en búslóðin verður í geymslu í Skagafirðinum svona fyrir utan það sem vinir hér ætla að passa. Við gistum hjá Sillu og Gumma og stútuðum við systur einni rauðvínsflösku sem verður nú varla talið til frétta ............
Í gær skrapp ég svo með mömmu og Sillu í Laugarmýri þar sem þær versluðu sér sumarblóm og Silla keypti sér trjáplöntur. Verð nú að segja að það er frekar skrítin tilfinning að vera ekki að kaupa sér sumarblóm en mikið óskaplega klæjaði mig í fingurna.Við komum svo heim seint í gærkvöld þannig að eins og áður sagði nýttist dagurinn vel til garðvinnu.
Framundan er annasöm vika í vinnu og einnig hér heima en við stefnum á að fara norður um næstu helgi með fullt af dóti þannig að síðasta mánuðinn hér á Hvanneyri verðum við í hálf tómu húsi.
....ég vonast einnig til að komast í gróðursetningu um Hvítasunnu hjá mömmu og pabba.....þó ekki verði nema í einn dag þá verð ég glöð

Njótið vinnuvikunnar sem er framundan.
Margrét
#2
26. maí 2009 klukkan 09:09
Samt er ég mjög glöð fyrir ykkar hönd auðvitað:)
Heyri í þér í dag
Kv Anna Lísa