Bara gaman
verður passlega búin að koma þér fyrir þegar ég mæti!!
nánari fréttir......
20. maí 2009 klukkan 11:50
Fékk nánari upplýsingar um íbúðina í dag og við fáum hana ekki fyrr en 1. ágúst sem er þá bara okey - breytum bara aðeins planinu og vonumst til að geta dvalið hjá ættingjum og vinum norður í Skagafirði í júlí eða þar til við þurfum að leggja af stað á Seyðisfjörð þar sem við förum út með Norrænu. Markmiðið er þá að sigla af landi brott 23. júlí til Danmerkur og þaðan förum við með ferju til Noregs en við erum ekki búin að plana alveg á hvaða stað í Noregi við stefnum til en við munum semsagt taka nokkra daga í ferðalag en komum svo að Ási 31. júlí.
Þórður byrjar svo væntanlega í aðlögun á leikskóla fljótlega í ágúst, ég byrja í skólanum 10. ágúst og sennilega Stefán Snær á svipuðum tíma. Haukur byrjar að vinna í haust þegar allir verða búnir að aðlagast í sínum skólum.
Nú er þetta allt að verða klárt á BARA eftir að pakka og skipuleggja en fyrsta ferð með dót norður (í geymslu í Skagafirði) verður farin á laugardaginn.
Hef lítið haft tíma til að hugsa um annað en ég vona að þið fyrirgefið það kæru vinir - en það má líka alveg kíkja við, ég get tekið mér pásu í þessu öllu saman

Berglind
#2
20. maí 2009 klukkan 12:23
Silla
EN frábært!!!
Óska ykkur öllum innilega til hamingju með þetta allt saman - þetta verður án efa eitt stórt ævintýr og enn ein rós í hnappagatið hjá ykkur!!
Til hamingju!
Silla.
Óska ykkur öllum innilega til hamingju með þetta allt saman - þetta verður án efa eitt stórt ævintýr og enn ein rós í hnappagatið hjá ykkur!!
Til hamingju!
Silla.
#3
21. maí 2009 klukkan 15:19
Mæli með að koma í land í Noregi í Kristiansand...þar er Dyreparken með Kardemommeby, Kaptein Sabeltann (sjóræningi, mjög vinsæll hjá strákum á leikskólaaldri) og flottur dýragarður...ef ég man rétt :)
Kv. Margrét