Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

af kynningu, brauđáti, árshátíđ og skólamálum

30. apríl 2009 klukkan 12:04
Fyllti bílinn af konum og fór akandi upp í Hvamm til Bjarkar á Volare kynningu í gærkvöldi. Þetta var alveg ljómandi fín kynning og mikið hlegið, skrafað, drukkið og etið!!!! Ætli mér hafi ekki tekist að prófa að bera á mig tuttugu gerðir af ýmsum kremum sem eiga að vera ferlega góð!! Það er reyndar skrítið að maður hafi komist af án þeirra til þessa Tongue out Ég var ekki komin heim fyrr en um hálf eitt og þá tókst mér ekki að sofna strax, vaknaði svo klukkan sex - ferlega hress sem er nú að koma í bakið á mér því ég get varla haldið augunum opnum fyrir syfju.
Undanfarna daga hef ég verið að missa mig í brauði og ég veit ekki hvernig ég á að snúa ofan af þeirri þróun - grunar að syfja síðustu daga megi skrifast að einhverju leyti á brauðáti - því það er bara ekki gott fyrir mig.
Verð að fara að taka mig í gegn og borða kanil og hunang í öll mál, það er víst allra meina bót Wink

Í kvöld er árshátíð LBHÍ og ég er svona að reyna að koma mér í rétta gírinn - en á erfitt með það, Þórunn P er búin að vera að peppa mig upp og ég held henni takist það áður en vinnudeginum verði lokið.... jú, jú, segjum það Laughing Ætla í það minnsta að ná mér í rauðvín (lífrænt) í Vínbúðinni á eftir. Mér skilst að lífrænu vínin séu frábrugðin mörgum öðrum vínum með það að maður fær ekki höfuðverk af þeim......og ég ætla að trúa því í dag, í það minnsta Cool 

Góðar fréttir, ég fékk bréf frá skólanum, ég er komin inn í kerfið hjá þeim, er s.s. orðin númer í tölvukerfinu!!! Erum ekki komin með húsnæði og ég er svolítið stressuð yfir því.....er eiginlega með magapínu yfir því......en þetta reddast, trúi ekki öðru Wink

Jæja - frábært að sjá fram á laaaaanga helgi. Reyndar verður Haukur eitthvað í vinnu en ég verð kannski eitthvað á ferðinni, sjáum til.

Góða helgi allir!
 
Bebba
þetta reddast!!!
skelltu þér á sæluviku og hafðu það gott bara...
#1
30. apríl 2009 klukkan 12:10
 
Steinunn
Góða skemmtun á árshátíð Sigga mín,svo kemurðu bara með mér í íþróttahúsið annað kvöld á Sálina ???
#2
30. apríl 2009 klukkan 13:32
 
Margrét
Góða skemmtun á árshátíðinni í kvöld...það verður gaman að heyra hvernig lífræna vínið reynist ;)
#3
30. apríl 2009 klukkan 13:54

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.