Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Minni á......

28. apríl 2009 klukkan 09:56

......að á miðvikudagsmorgnum er opinber göngudagur nokkurra árrisula kvenna, þá hittumst við út við hringtorg hér á Hvanneyri í bítið, klukkan 6:30 - genginn er svokallaði "stóri hringur". Þetta tekur um 40 mínútur og það eru allir velkomnir með Laughing

Í stuttu máli:
Miðvikudagar
Hringtorgið
Klukkan 6:30
Stóri hringur

 
Margrét
Bíddu...tekur þetta ykkur um 40 mínútur??????? Ég er yfirleitt 50 mínútur og mér finnst ég ekkert ganga hægt!! :S Held ég þurfi að æfa mig eitthvað betur áður en ég slæst í hópinn!! :O

Gangið þið vel... ;)
#1
28. apríl 2009 klukkan 14:31
 
Ása D.
Hæ hæ - Margrét ekkert láta það á þig fá þó þessar skörungskvensur strunsi þetta svona hratt - ég fór með þeim um daginn og rétt hélt í við þær (reyndar líka gott að fá hvatningu til að bæta sig pínu í hraðanum - ekki satt??) - en ég er alveg til í að labba aðeins hægar þegar ég mæti - allt í lagi þó hópurinn sé ekki allur á sama hraða ;o)

ég skal reyna að láta vita í góðan tíma þegar ég fer með - þannig að þú getir drifið þig með - ekki spurning !!

kv. Ása Dóra
#2
02. maí 2009 klukkan 22:50

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.