Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Síðasta vika aprílmánaðar

27. apríl 2009 klukkan 16:16
Góðan dag.
Það hefur verið í nógu að snúast hjá mér/okkur síðustu daga. Sumardagurinn fyrsti var nú ekkert spes veðurfarslega séð en við fjölskyldan flúðum út í skjólbelti til að vera í skjóli, kveiktum smá eld, tálguðum okkur greinar og grilluðum sykurpúða. Ég fékk fjarnámsnemana í heimsókn og var að þvælast í skógarferðum tvo dagparta. Kosningarnakvöldið var rólegt og sofnaði ég yfir sjónvarpinu eftir að hafa fengið mér léttan bjór með mínum manni og nokkrum félögum sem kíktu í heimsókn. Síðan var ég vakin í gærmorgun með bestu fréttum sem ég hefði getað hugsað mér eftir þessar kosningar en uppbótarþingmaðurinn í okkar kjördæmi er okkar maður!!! Ásmundur er semsagt orðinn þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi. Öflugur málsvari landbúnaðarins og Landbúnaðarháskólans kominn á þing Laughing
Ég og drengirnir fórum svo í kirkju, vorum við fermingu Péturs Freys og veislan á eftir var alveg frábær. Síðdegis kíktum við svo í afmæliskaffi til Þórunnar. Ég fór ekkert í vinnu í dag en Þórður Logi hóstaði svo ljótum hósta í nótt að ég þorði ekki að senda hann á leikskólann.
Markviss hreyfing hefur ekkert verið skráð en ástæðan er ekki hreyfingarleysi því dagana tvo sem fjarnemarnir voru hér þá sátum við sko ekki á rassinum, við örkuðum um Borgfirska skóga og leystum hin ýmsu verkefni - ég hef þannig lagað ekkert samviskubit Wink

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.