Sko, svona er þetta.... Margrét Helga!
Ég er ekki að ætlast til að það sé allt gert núna, ég velti þvi fyrir mér hvað gerðist á tímabilinu frá því að elstu skjólbeltin (rétt fyrir 1960) voru sett og til dagsins þegar skjólbeltarækt hófst að nýju hér á Hvanneyri eða fyrir ca 8 árum síðan. Sofnaði fólk? Hafði það ekki trú á að tré gætu vaxið hér? ...og svo kvarta allir yfir rokinu hér arg og garg, ég geri mitt besta í að stuðla að þessu í mínu starfi en það er víst ekki nóg, þar sem ég hef aðeins landbúnaðarsvæðin á minni könnu - en svona til að gleðjast yfir að þá kom Kári til mín áðan og við tókum umræðu um þetta .......og það er kannski eitthvað að gerast, kannski verður ákveðin upphæð "eyrnamerkt" í þetta á næstu árum, þannig að eitthvað verður farið að gera inní hverfunum...vú´húúú;)
Fórum í skógarferðina....
21. apríl 2009 klukkan 11:10
Vegna þess að leikskólinn var lokaður eftir hádegið í gær fórum við í skógarferð í Skorradalinn, ég Sirrý og börnin. Það var hífandi rok en auðvitað skjól í skóginum og dvöldum við lengi við og krakkarnir léku sér mikið og skemmtu sér vel. Það trúði þessu enginn því á Hvanneyri var hífandi rok og rigning á meðan við vorum í skjólinu. Rigningarúði var alveg en hann gerði ekkert til því skjólið var algjört. HVÍ Í ANDSKOTANUM GRÓÐURSETUR LBHÍ, ÍBÚAR OG NEMENDUR EKKI FLEIRI TRJÁM Á HVANNEYRI????? Það væri hægt að bæta svo búsetuskilyrðin með þeim hætti. Ég hef gert eins og ég get en get og margir íbúar og nemendur en aðrir tala bara en framkvæma eitthvað minna!!!! GRRRRRRRRRRRRRRRRRRR!
Margrét
Glæsilegt! :)
#3
21. apríl 2009 klukkan 16:50
Ragnhildur Jónsdóttir
Sko, ég get haldið langa ræðu um þetta mál :)
En áður en farið er af stað í að planta er mjög mikilvægt að útbúa landnýtingaráætlun fyrir jörðina og ákveða hvar viljum við hafa tré, hvar viljum við ekki hafa tré, hvar viljum við geta ræktað til matvælaframleiðslu o.s.frv. Mér fannst t.d. ekki skynsamlegt að planta barrtrjám í fallegu holtin niður með veiðihúsveginum - af hverjum var ekki frekar plantað meðfram holtunum en þau fengju að halda sér (meira að segja var plantað ofan á holtin). Skjólbeltin sem Guðmundur Hall setti meðfram vatnsbakkanum við Nautastöðina er dæmi um mjög vel heppnaða ræktun og það hefði þurft fleiri svoleiðis á staðnum.
Læt hér staðar numið í prédikun - en er alltaf til í skoðanaskipti um þetta :)

#4
22. apríl 2009 klukkan 08:08
Ása D.
Váá hvað ég er sammála þessu Sigga
- síðan ég kom hingað á Hvanneyri hef ég verið að undrast yfir því að ekki skuli vera meira gert fyrir umhverfið hérna á staðnum - allavega á vegum skólans - þar sem þetta ætti að vera til fyrirmyndar, og bera einhver merki þess að verið er að kenna umhverfisskipulag, skógrækt og skrúðgarðyrku og önnur fög þessu tengdu.......
.....ég er samt sammála því að það þarf að athuga aðeins hvar á að planta, ég t.d. tók þátt í að plöntunardegi í fyrra, full áhuga enda nýbyrjuð í skólanum - en þegar ég fór að spyrjast fyrir um hvernig hefði verið staðið að ákvörðunartöku um það hvar skyldi planta, þá var bara yppt öxlum og talið líklegast að garðyrkjustjórinn hafi ákveðið þetta........en við vorum einmitt að gróðursetja töluvert upp í klettaborgirnar....
.....ég ætla alls ekki að gera lítið úr fyrrverandi garðyrkjustjóra, sem vann víst mjög gott starf hérna - enda snýst þetta ekki um það - heldur það að heildstætt skipulag sé gert og ákveðið sé í sameiningu - og með samþykkt þeirra sem hagsmuna eiga að gæta, hvernig stefnan skal tekin til framtíðar varðandi þessi mál og önnur......
.........svona áður en ég hætti þessari löngu athugasamd (Sigga þú bauðst uppá þetta heheh)......ætla ég að benda ykkur sem þetta lesið á að drög að aðalskipulagi Borgarbyggðar liggja nú fyrir og er öllum frjálst að leggja inn athugasemdir við það - þetta er alltof illa nýtt af þeim sem búa á svæðum sem verið er að skipulegga, og oftast er búið að samþykkja skipulög og grafan komin á staðinn þegar fólk vaknar og ætlar að fara að mótmæla.......SKOÐUM HVAÐ ÞAR ER AÐ FINNA VARÐANDI SKJÓLMYNDUN Á HVANNEYRI !!!
kv. Ása Dóra

#5
02. maí 2009 klukkan 22:44
Það er frábær hugmynd að reyna að fá fólk til að planta fleiri trjám hér á Hve...fínt að reyna að fá hverfin til að taka sig saman og planta skjólbeltum þar sem verstu áttirnar mæða mest á...t.d. hérna fyrir austan Sóltúnshverfið og Flatahverfið. Við munum að minnsta kosti planta einhverju í kring um garðinn okkar einhverntíma í framtíðinni þegar maður getur gefið sér tíma til að hugsa um svoleiðis...spurning hvort staðurinn geti fengið styrk einhversstaðar frá til að kaupa plöntur í þetta...efast um að það þýði að biðja LbhÍ eða sveitarfélagið að leggja út fyrir kostnaði við þetta, þeir liggja á hverri krónu eins og ormur á gulli núna á þessum síðustu og verstu...Þá er bara að reyna að fá íbúana til að taka til hendinni, allir að leggja til ákveðið magn af plöntum (eða ákveðna upphæð og láta svo einhvern með viti fá heildarsummuna og fjárfesta í einhverju gáfulegu sem veitir skjól) og svo myndi verða svona "dugnad" eins og er oft í hverfum í Noregi (og þú átt pottþétt eftir að verða vör við) og allir hjálpast að við að pota þessum plöntum niður á gáfulegum stöðum. Það væri hægt að taka einhvern laugardag í þetta, byrja snemma morguns, grilla svo saman um kvöldið og gera eitthvað úr þessu! Satt best að segja myndi ég ekki búast við mikilli þátttöku nemenda þar sem að þeir stoppa flestir hverjir stutt við og munu ekki njóta góðs af þessu. Kannski er þetta illa gert af mér að búast ekki við meiru en þannig er þetta bara oft. Auðvitað eru ekki allir eins, en þetta er mín reynsla. Ætla að hætta núna þar sem þetta er nú eiginlega næstum því orðin bloggfærsla hjá mér ;)
En gott að það var gaman hjá ykkur í gær í skógarferðinni :) Sjáumst hressar í saumó í kvöld :) MEÐ prjóna!! ;)
Kv. Margrét