af útivist og fleiru
19. apríl 2009 klukkan 19:39
Þessi helgi hefur verið ansi ljúf, skruppum í morgunkaffi til Sirrýjar, fengum gesti í gær, fór í langan göngutúr í morgun, sýndi húsið um hádegisbil og eyddi meirihlutanum af tímanum eftir hádegi í útiveru með Þórði Loga. Við Þórður gengum út í skjóbelti þar sem við gerðum ýmsar uppgötvanir eins og t.d. það að grasið er að byrja að grænka en það var skondið þegar sá stutti beygði sig yfir snarrótarsinuflóka og sagði að nú væri grasið alveg að verða eins og það ætti að vera, því það glytti í grænt
við kíktum við hjá Teddu og síðan fórum við í hjólatúr og að endingu var spurt eftir Pétri og þeir léku sér í sandkassanum í dágóða stund.
Stefán Snær er komin heim eftir helgardvöl hjá föðurbróður sínum en hann mætti einnig á landsliðsæfingar í TBR þessa helgina - seigur strákurinn
Á morgun ætla ég að fara fyrr en venjulega í vinnuna en ég tek mér frí eftir hádegið því leikskólinn verður lokaður þá vegna starfsmannafundar. Ef veður leyfir er stefnt á ferð í Skorradalinn með nesti
við kíktum við hjá Teddu og síðan fórum við í hjólatúr og að endingu var spurt eftir Pétri og þeir léku sér í sandkassanum í dágóða stund. Stefán Snær er komin heim eftir helgardvöl hjá föðurbróður sínum en hann mætti einnig á landsliðsæfingar í TBR þessa helgina - seigur strákurinn

Á morgun ætla ég að fara fyrr en venjulega í vinnuna en ég tek mér frí eftir hádegið því leikskólinn verður lokaður þá vegna starfsmannafundar. Ef veður leyfir er stefnt á ferð í Skorradalinn með nesti
ég kem heim á morgun - spurning hvað ég stoppa lengi við.......ég reyni að kíkja á þig ;o)
kv. Ása D.