3,6 farin frá áramótum
08. apríl 2009 klukkan 09:23
Held það hafist að taka 1,4 af til viðbótar og set ég markið á apríllok. Er það ekki bara gott plan?
Hreyfingin hefur setið á hakanum í rúma viku hjá mér en ég veiktist svo hastarlega að ég hef verið að byggja mig upp í rólegheitunum.
Við ætlum norður um páskana og reyndar er eldri sonurinn nú þegar farinn norður og er hann núna í garðyrkjustöðinni hjá ömmu sinni að sigta mold og prikla sumarblómum
Páskarnir verða tileinkaðir vinum og ættingjum fyrir norðan og verðum við örugglega á miklu flakki á milli húsa, einnig langar mig til að hreyfa mig eitthvað og mun hafa fatnað til þeirra hluta með mér (Silla sys....!!!) Píslargangan er í Mývatnssveit á föstudag, það spáir ekkert of vel en við ætlum bara að ákveða það annað kvöld hvort við skellum okkur í þá frægu göngu.
Noregsundirbúningur gengur hægt en örugglega, búin að senda fullt af gögnum um mig (skólaumsókn) og svo erum við búin að senda inn eina umsókn um húsnæði.
Í dag er 8. apríl og tengdamamma og Berglind eiga afmæli, til hamingju með það
Læt þetta duga að sinni og óska ykkur öllum gleðilegra páska