Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Píslargangan....?

26. mars 2009 klukkan 23:29
Jú, ég held ég setji það á stefnuskrána að komast í píslargönguna á föstudaginn langa í Mývatnssveit!! EF veður leyfir. Þá er einn dagur í páskafríinu planaður en svo væri æskilegt að komast á skíði í Tindastól. Langar alveg gífurlega mikið til að taka frí í Dymbilvikunni og taka langt páskafrí - sjáum til með það Smile

Í dag er venjulegur vinnudagur en svo er komin helgi!!! Við ætlum í gönguferð í Norðurárdalnum seinnipartinn á laugardag (með hópi fólks úr vinnunni og nærliggjandi stofnunum) og er boðið í mat á eftir, það verður örugglega mjög gaman. Wink

Stefán Snær er að fara að keppa á móti um helgina en það er fullorðinsmót og hann ætlar að keppa með vini sínum í tvíliðaleik, mjög spennandi.
Píslargangan hljómar æðislega.. Mig hefur lengi langað til að taka þátt í henni... Mývatnssveit er náttúrulega bara æði... Ég hef aldrei komið þangað að vetri til en það hefur lengi staðið til.. Svo verður að fara í lónið á eftir....
#1
27. mars 2009 klukkan 23:18

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.