...á milli vita...
18. mars 2009 klukkan 11:08
Greinin mín er í yfirlestri núna og mér finnst eitthvað hálf tómlegt - hef samt alveg næg verkefni en einhvernveginn finn ég fyrir tómleikatilfinningu. Undanfarnir dagar og vikur hafa einkennst af miklum önnum og stressi sem ég er að gera mér grein fyrir núna þegar allt er að komast í eðlilegt horf.
Gat ekki annað en glott út í annað þegar ég las stjörnuspá dagsins á mbl.is:
Vatnsberi: Þú ert svo kappsamur að sólarhringurinn dugar þér ekki til að koma öllu því í verk sem þú vildir.
Fór í leikfimi í gær og þvílíkt og annað eins - hún tók sko á, lærin fengu að finna fyrir því og sama er að segja um magann.
Um kvöldið var saumó þar sem ég gæddi mér á allskonar góðgæti .... mmmm. Ég var hins vegar svo þreytt að ég var komin heim snemma.
Í dag er ég fersk, er að vinna í kennsluundirbúningi og á eftir er meiningin að skella sér til Jennýjar að notfæra sér gjafabréfið góða
Góðar stundir.