hér er ég.....
09. mars 2009 klukkan 12:09
Ég er ferleg, ekkert blogg í nokkra daga og fólk farið að stöðva mig á göngunum og rukka!!!
Það er semsagt nóg að gera hjá mér sem endra nær og því bitnar það á blogginu.
Í fréttum er það helst að síðasta þriðjudag funduðum við þriðjudagskonur og var tekin mjög svo "drastísk" ákvörðun. Mars er megamánuður og ætlar hópurinn - alls 7 konur - að losa sig við 20 kíló. Ef það næst ætlum við saman í sund þann 6. apríl!!!!
Haukur kláraði sveinsprófið í gær þannig að tveggja mánaða undirbúningi og endalausum hugsunum um það próf er að baki og nú er komið að mér en ég verð að spíta í lófana og skila greininni af mér sem fyrst og verð ég því að nýta allan lausan tíma til vinnu. Haukur sér um drengina og heimilið á meðan þetta gengur yfir en svona verður þetta að vera, samvinna, samvinna, samvinna.
Svo eru það félagsmálin ég er varamaður í kjörstjórn og verð við talningu atkvæða í forvali VG um næstu helgi.....já, já ótrúlegt hvað ég kem mér í.
Það er semsagt þannig að ég mun vinna út í eitt, hreyfa mig eitthvað á milli og reyna að hugsa um mataræðið og engin pása fyrr en kvöldið 20. mars þegar við förum í matarklúbb.
Hendi inn bloggi við tækifæri - farið vel með ykkur.

Margrét
Iss...þið þriðjudagskonurnar farið sko létt með þetta!! Góða skemmtun í sundi!
#1
09. mars 2009 klukkan 16:48
Guðrún Pálma
Tökum á því í Breiðholtinu kv GP
#2
11. mars 2009 klukkan 11:11