Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ég er sprungt!

24. febrúar 2009 klukkan 13:05
Þannig orða börnin það oft þegar þau borða yfir sig "ég er sprungt" og það er það sem kemur upp í hugann núna. Ég var semsagt að koma úr hádegismat þar sem í boði var saltkjöt og baunir og þtil að toppa máltíðina þá voru bollur í desert!!! Eins gott að ég er að fara í leikfimi í kvöld Wink Dagurinn í dag er einnig mjög merkilegur fyrir leikskólabörn og foreldra  hér á stað því klukkan hálf tíu í morgun fóru börnin í skrúðgöngu á nýjan leikskóla - loksins, hér er hægt að sjá frétt um atburðinn.
Einnig er þetta stór dagur því sjálfur forsetinn er væntanlegur og börnin eru mjög spennt yfir því og það var heilmikið mál í morgun þegar væntanleg heimsókn var rædd hvort frú Dorrit kæmi og þá líka hundurinn.....?

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.