Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Helgi framundan.....

20. febrúar 2009 klukkan 09:26
Þórunn Harðardóttir fær gæðastund með mér (kaffi í Geirabakarí) í verðlaun fyrir að vera 20 þúsundasti gesturinn jeij vúhú - heppin!!!
Ég var spurð að því í fyrradag hvað ég ætlaði að gera í tilefni af afmæli mínu, ég sagði að ef það væri fimmtudagur færi ég á pöbbinn og fengi mér einn öllara en þar sem það væri miðvikudagur þá væri ég bara í rólegheitunum heima. Mér var þá bent á að ég gæti alveg farið á pöbbinn þó ég ætti ekki afmæli, þannig að það varð úr að milli 10 og 11 í gærkvöldi komu nokkrar konur til mín og við fengum okkur Mojito og röltum síðan á barinn til að fá okkur einn öl. Þetta var mjög gaman, frábært hvað allir voru glaðir, engin leiðindi og krakkarnir "mínir" (nemendur mínir) voru svo frábær, þarna dönsuðu þau út í eitt og Þórunni varð það á orði hvort danskennsla í grunnskólum landsins væri farin að skila sér. Einn dansfimur nemandi bauð mér (gömlu konunni) upp í dans og ég get svo svarið það að ég hef aldrei á ævinni dansað við svona góðan dansara!
Jæja læt þetta duga í bili, þarf að sinna vinnunni, seinnipartinn er Borgarnesferð með drengina í badminton og helgarinnkaup - það á að gera pizzu í kvöldmat - endalaus gleði Laughing
Set inn helgarmatseðilinn í kvöld eða á morgun, góðar stundir þangað til.
 
Anna Lísa
Ég varð bara að kvitta ég er númer 20021 %) aðeins of sein, ég kem þá bara í kaffi heim til þín í staðinn hehe
#1
20. febrúar 2009 klukkan 11:07
 
Þórunn Harðar
Æ en gaman Sigga mín - ég hlakka til :-)
#2
20. febrúar 2009 klukkan 18:41

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.