Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Skýrsla vikunnar

18. febrúar 2009 klukkan 09:08
Ég þyngdist ekki og ég léttist ekki. Mér líður rosalega vel. Ég fór í leikfimi í gær og tók þvílíkt á - þessi leikfimi hjá Önnu Berg er algjör snilld, ég mæli með henni. Ekkert hopp og hí heldur rosalega góðar æfingar, bestu magaæfingar sem ég hef á ævi minni gert Smile

Mataræðið í gær var í góðum farvegi en ég býst ekki við eins góðu í dag:
Mm: Kornfleks, fjörmjólk og appelsína
10 kaffi: Brauðtertuflís
Hm: Kjúklingasalat
Síðdegi: Brauðtertu og eplakökuflís
Km: óákveðið
Kvöldhressing: Brauðtertuflís

Í dag er ég 35 ára, merkilegt hvað tíminn flýgur, mér finnst ég hafi verið tvítug í fyrra! Maður yngist ekki heldur eldist maður sem betur fer en ég hef tekið þann pól í hæðina að vera ekki að sökkva mér í þunglyndi yfir aldrinum. Það er nefnilega ekki hollt, maður á að þakka fyrir að hafa þó fengið að lifa þetta og í þokkabót á maður góðan mann og tvo hrausta syni. Já, lífið er gott Smile og munið að maður uppsker eins og maður sáir til að öðlast gæfu þarf maður að vinna jarðveginn.
Njótið lífsins.
 
Anna Lísa
Innilega til hamingju með daginn Sigga mín. Hafðu það nú gott í dag. Það má vel vera að ég kíki á Hvanneyri í dag :)
#1
18. febrúar 2009 klukkan 09:19
 
Steinunn Hjálmars
Til hamingju með daginn mín kæra,35 flottur aldur við erum svo ungar í anda er það ekki???
Verð að fara heyra í ykkur hljóðið knús á línuna kveðja Steinunn.
#2
18. febrúar 2009 klukkan 09:27
 
Margrét
Til lukku með daginn Sigga mín! :)

Veistu, aldur er eitthvað sem maður á alls ekki að vera neitt svekktur yfir að fari upp á við...Með hækkandi aldri öðlast maður vonandi meiri þroska og litur lífið öðrum augum en maður gerði t.d. þegar maður varð tvítugur...Það er vissulega margt skemmtilegt sem maður hefur gert og gerði þegar maður var ungur en hugsaðu þér bara hvað það er margt eftir að sjá og gera! :) Og með auknum þroska (og aldri) þá mun maður bara meta það betur og gera hlutina öðruvísi en maður hefði gert á sínum yngri árum :)

Hafðu það sem best í dag...knús, Margrét
#3
18. febrúar 2009 klukkan 10:10
 
Anna Lísa
Já það var annað..... það er greinilegt að æfingarnar eru að skila sér hjá þér, þú ert svo dugleg í mataræðinu og léttist ekki en þyngist ekki heldur þá ert þú að breyta hlutföllum fitu og vöðva;) frábært hjá þér duglega kona
#4
18. febrúar 2009 klukkan 12:17
 
Guðrún Pálma
Til hamingju með daginn Sigga mín
kv Guðrún
#5
18. febrúar 2009 klukkan 13:28
 
Silla
Hæ pæ..
Innilega til hamingju með daginn Sigga mín.. sösss þú lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 30 ára sko... hehe en ég er sko sammála þér með aldurinn og allt það og það að þakka fyrir hvað maður á og hefur........ eins og vinkona mín skrifaði á blogginu sínu, það er vert að lesa annað slagið www.jumpfit.blogcentral.is frábært blogg einmitt um hvað maður á að þakka fyrir hvað maður á og hefur....:)
Hafðu það gott Sigga mín, ég er að fara að setjast yfir dagsetningar í matarklúbb, verður líklega í mars...
en hafðu það gott!! Silla og co
#6
18. febrúar 2009 klukkan 14:47
Til hamingju með afmælið. Maður vex úr grasi og stefnir að því langtíma markmiði að verða gömul kona. Mér finnst t.d. mjög svalt að vera 49 ára. Með bestu kveðjum, Gyða
#7
20. febrúar 2009 klukkan 09:26

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.