Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Fjórða boðorð gæfunnar og þriðjudagsplanið

16. febrúar 2009 klukkan 20:45
Fjórða boðorð gæfunnar
Það að skapa gæfulegar aðstæður felur ekki einungis í sér að hugsa um eigin hag.
Skapir þú aðstæður sem einnig gagnast öðrum verður gæfan þér hliðholl.

Þriðjudagurinn hljómar svona: Fara með ÞLH á leikskólann, kenna, vinna, göngutúr í hádeginu, meiri vinna, í Borgó að versla, fundur, elda mat (reyndar ekki flókið), fara í leikfimi, gera miðvikudagsplan....hm og örugglega eitthvað fleira sem ekki tekur því að nefna.
Matarlega hljómar þetta svona:
Mm: Brauð með osti, 1/2 banani
10 kaffi: Appelsína
Hm: Túnfiskur, 1 egg, majo, kex og grænmeti
Síðdegi: Appelsína
Km: Kjúklingur í fersku grænmetisbeði
Kvöldhressing: Ávöxtur og afgangur af mjólkurskammt

Haukur var á námskeiði í dag í bænum og verður reyndar líka á morgun. Það varð því ekkert úr spinningtíma hjá mér í kvöld á meðan Stefán Snær var á æfingu í Borgarnesi því Þóður Logi varð að fljóta með. Við skelltum okkur hins vegar í sund sem var aldeilis ljómandi. Núna er að komast ró á alla, held ég fari bara snemma í rúmið í kvöld, ó sei sei.
 
Margrét
Var einhversstaðar í planinu að sækja ÞLH á leikskólann eða er hann best geymdur þar? ;) Eða var það að sækja hann eitt af því sem ekki tekur því að nefna af því að það er svo sjálfsagt? :) Eða sækir einhver annar hann?
Ekki þar fyrir, ég veit að hann mun verða sóttur, það bara var svolítið skondið að þú minntist á að fara með hann en ekki sækja og ég varð að kommenta á það! ;)

Kv. Margrét... ;)
#1
17. febrúar 2009 klukkan 12:11
hahaha þetta var einmitt það sem ég var að spáæí hvort ég ætti að nefna vegna þess að ég sæki hann oftast en HÞ fer oft með hann, sérstaklega þegar ég er að fara að kenna kl 8:15.....þú skilur
#2
17. febrúar 2009 klukkan 12:43
 
Margrét
Hehe, skil þig... :)
#3
18. febrúar 2009 klukkan 10:56

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.