Vantar fyrirsögn!!
Ég hef ekki verið að standa mig í að gefa skýrslu hér um matarmál, í heila þrjá daga!!! Föstudagurinn fór svona og svona en hefði eflaust getað verið verri, gærdagurinn var alveg ljómandi en dagurinn í dag er í hálfgerðu rugli. Batnandi mönnum er best að lifa stendur einhversstaðar og hef ég það að leiðarljósi þegar þetta er skrifað. Enda er það þýðingarlítið að velta sér upp úr því sem er búið og gert, heldur á maður að nota orkuna til að vera jákvæður og horfa fram á veginn og þó ég hafi farið útaf sporinu um helgina þá ætla ég ekki að slá öllu upp í kæruleysi og sukka enn meira en það er einmitt vandamálið svo ótrúlega oft. Þarna vil ég meina að ég sé búin að temja hugann.
Svo ég gefi upp í hverju sukkið fólst þá var það kvöldmaturinn á föstudag, hammari og franskar - laugardagsmaturinn var nú okey þar til klukkan var orðinn kvöldmatur, ég fékk mér ekki nægt grænmeti og vigtaði ekki, auk þess fékk ég mér nokkra nammimola og tvö glös af krækiberjavíni en okkur hafði verið boðið í mat þá um kvöldið. Dagurinn í dag var fínn í morgun, síðan fengum við þrjár fjölskyldur í heimsókn en haldin var bjúgnaveisla (heimagerð bjúgu) í hádeginu með uppstúf, grænum baunum og rauðkáli - ég vigtaði ekki. Það sem eftir var af deginum hef ég einungis borðað ávexti og mjólk en það stendur með manni að borða svona kraftmikla máltíð fyrripart dags......ég einfaldlega hef ekki löngun í að borða mat.
Morgundagurinn lítur svona út:
Mm: Ristað brauð, kotasæla, sulta og 1/2 banani.
10 kaffi: Appelsína
Hm: Túnfisksalat, grænmeti og hrökkbrauð.
Síðdegi: 1/2 banani
Km: Soðin ýsa og grænmeti
Kvöldhressing: Ávöxtur og afgangur af mjólkurskammti.
Næsta boðorð gæfunnar kemur annað kvöld. Góðar stundir.