Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

föstudagsplan - dagur tvö á fræðaþingi á morgun

12. febrúar 2009 klukkan 17:17
Þetta gekk aldeilis vel í dag, ekkert kex eða sætindi í kaffitímum, bara kaffi og grænmeti. Í hádeginu fórum við nokkur á Jómfrúna og fékk ég mér litla "smörre"brauðsneið með kjúklingabringu og káli, ólívum og baunaspírum - hrikalega gott. Fræðaþingið var alveg ljómandi, fullt af áhugaverðum erindum en ég ákvað þó að fara snemma heim og sleppa nokkrum erindum og "stuðinu" þ.e.a.s. kokteilboði og kvöldvöku. Á það bara inni þar til síðar. Dagurinn á morgun verður langur og betra að vera vel úthvíldur til að ná að halda athygli allan daginn.
Þá er það morgundagurinn matarlega séð:
Mm: Ristað brauð, kotasæla, sulta og banani.
Hm: Út að borða á einhvern grænmetisstað sem Björk Harðar veit um (man ekki nafnið á honum)
Km: Kjúklingur og grænmeti
Ávextir, mjólk og fita hér og þar yfir daginn.

Þriðja boðorð gæfunnar
Hafir þú ekki heppnina með þér gæti ástæðan verið sú að kringumstæðurnar væru þær sömu og þær hafa alltaf verið.
Til þess að öðlast gæfu er nauðsynlegt að skapa nýjar aðstæður.

Þarf að fara að gera mig klára fyrir leikfimina..... Wink
Njótið dagsins.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.