Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Fimmtudagsáætlun

11. febrúar 2009 klukkan 19:28
Nú er ég í pínu vandræðum, ef vandræði skildi kalla. Ég er að fara á fræðaþing á morgun sem þýðir að ég er ekki með nestið mitt, heldur fer út að borða í hádeginu. Ég er hins vegar búin að lofa mér því að ég fæ mér eitthvað sérlega holt og grænmeti verður þar í aðalhlutverki. Ég ætla að sleppa kokteilboði sem er kl 16 því það er svo tímafrekt en ég vil frekar ná leikfiminni minni sem er alveg mögnuð.
Matardagurinn 12. feb lítur þá svona út:
Mm: Cherios, fjörmjólk, banani.
Hm: Grænmeti og ????
Síðdegishressing: appelsína
Km: Grænmeti og skyr
Kvöldhressing: Afgangur af mjólk, ávöxtur og fituskammtur.

Annað boðorð gæfunnar
Margir vilja njóta hamingju í lífinu
en fáir ákveða að leita hennar.

Góðar stundir.
 
Anna Lísa
Sigga þú ert yndisleg, það er svo gott að lesa bloggið þitt. Þessi grein sem þú settir inn af femin hristi mikið upp í mér, ég fór að hugsa (ætti að gera það oftar hm ha :) Þetta er auðvitað svo rétt og ég er búin að labba í gær og í dag og líður svo vel.
Það er líka ótrúleag gott að fylgjast með því hvernig þú tekur á danska, maður getur lært helling af því að kíkja hingað inn annað slagið.

Kv Anna Lisa sem ætti að vera farin að sofa fyrir klukkutíma
#1
12. febrúar 2009 klukkan 00:19
 
Margrét
Er ekki bara um að gera að skreppa á Nings? Þeir eru með svona spes máltíðir fyrir danska... :)

Tek undir með Önnu Lísu...allt rétt sem hún sagði (nema það að hún hugsi ekki nógu oft ;) )

Gangi þér annars hrikalega vel...

Kv. Margrét
#2
12. febrúar 2009 klukkan 09:11

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.