Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Samantekt vikunnar

10. febrúar 2009 klukkan 21:05

Ég vigtaði mig áðan og get ekki annað en verið ánægð, á fimm vikum hafa 2 kíló farið.
Það er reyndar nokkuð ljóst að það að ég skrifi hér inn hvað ég ætla að borða hvern dag er að virka og ætla ég að halda því áfram. Fyrir utan hvað það er gott fyrir mig þá er þetta gott fyrir alla fjölskylduna, það er þá á hreinu hvað á að vera í matinn hvern dag.
Varðandi gærdaginn þá gafst ekki tími til að elda kjöt og fékk ég mér því skyr í kvöldmat, ásamt grænmeti (að sjálfsögðu).
Vikan leit þá svona út ef ég fer yfir stóru flokkana:
3 x kjöt
1 x kjúklingur
6 x fiskur
4 x egg
6 x ostaflokkur 1 (75 gr)
2 x ostaflokkur 2 (25 gr)
3 x morgunkorn

Þá er það miðvikudagsplanið:
Mm: Cherios, fjörmjólk og 1/2 banani
10-kaffi: Appelsína
Hm: Túnfiskur, léttmajo, hrökkbrauð og grænmeti
Síðdegi: Appelsína
Km: Soðin ýsa og grænmeti
Kvöldhressing: 1/2 banani og fjörmjólk

Svona í lokin vil ég vitna í bók sem ég hef verið að glugga í en hún heitir "Þú ert þinnar gæfusmiður" eftir Alex Rovira og Fernando Trías De Bes, þar stendur:

Fyrsta boðorð gæfunnar
Þú færð engu ráðið um tilviljanakennda heppni. Þess vegna endist hún stutt.
Sanna gæfu skapar maður sér sjálfur. Þess vegna varir hún að eilífu.

Læt þetta duga í bili og gangi ykkur vel.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.