"Kyrrseta frystir líkama og sál"
Textinn hér fyrir neðan er fenginn af vefnum femin.is
Mannslíkaminn er hannaður fyrir hreyfingu en bregst að sama skapi illa við mikilli kyrrsetu. Öll hreyfing er betri en engin hreyfing en almennar ráðleggingar miða við að fullorðnir hreyfi sig rösklega í minnst 30 mínútur samtals daglega og börn hreyfi sig í minnst 60 mínútur daglega.
Með hreyfingu smyrjum við liðamót og losum um andlega og líkamlega spennu. Við færum líkamanum súrefni og næringarefni og losum hann við úrgangsefni. Með tímanum styrkjast bein og vöðvar og hjarta- og æðakerfið verður afkastameira. Allt þetta stuðlar að því að við höfum meiri orku og styrk til að takast á við verkefni daglegs lífs og til að gera það sem okkur finnst skemmtilegt. Algengir fylgifiskar langvarandi kyrrsetu eru hins vegar stirðleiki, kraftleysi, verkir og vanlíðan ásamt því að líkurnar á ýmsum sjúkdómum aukast til muna.
Þetta er nefnilega málið, ég finn það vel núna þegar ég hef lítið getað farið út að hreyfa mig vegna kvefs og hósta að mér líður ekki eins vel og venjulega,. bæði andlega og líkamlega og ég held að hreyfingin sé þarna stóra málið.
Ef þið viljið lesa þessa grein í heild þá er hún hér
Svo í blálokin - ALLIR ÚT AÐ HREYFA SIG - 30 MÍNÚTUR Á DAG 
Þú stendur þig annars eins og hetja í mataræðinu, mín kæra, er alveg hreint hrikalega stolt af þér :) Verður gaman að sjá hvað vigtin segir á morgun!
Já, og takk fyrir síðast :) Gaman að fá ykkur í heimsókn :)
Kv. Margrét