Slappleiki
02. febrúar 2009 klukkan 09:28
Ég er ekki búin að ná fullri heilsu enn, þetta fer að verða svolítið þreytandi. Ætlaði að vinna heilmikið um helgina, fara yfir verkefni og annað en það gekk ekki eftir, garg! Þess í stað var ég mætt í vinnuna klukkan sjö í morgun til að reyna að vinna eitthvað upp, þarf svo að vera heima með Þórð Loga eftir hádegið því í dag er starfsdagur á leikskólanum. Haukur er heima fyrir hádegi og ég eftir. Ég sé rúmið í hyllingum en ég er ekki frá því að ég sé með hita......
Jæja, verð að halda mér að verki, eigið góða vinnuviku kæru félagar
Jæja, verð að halda mér að verki, eigið góða vinnuviku kæru félagar

Hálf vatnsglas af viskí og góður svefn er víst ágæt lausn á svona vandamáli.
Hef að vísu aldrei prófað það. Mundu að þetta er aðeins fyrir 18 ára og eldri og er líklega ekki trix sem passar við þann danska :)
Vona að þú farir að ná þessu úr þér gamla!
kv
Rakel