Til hamingju með þessa stóru ákvörðun....sem er samt minna mál en maður heldur (mín reynsla).
Svo mannstu bara að ef þú ert slöpp verðuru líklega að gefa líkamunum tíma til að "gera við".
Klapp á bakið!
Vigtun og smá fréttir af okkur
28. janúar 2009 klukkan 10:09
Jæja, það var formleg vigtun í gær. Hún kom ekki nógu vel út hjá mér, þyngdaraukning uppá 600 gr sem eru nú reyndar engin ósköp þegar tekið er tillit þess að ég fór á þorrablót um helgina með tilheyrandi mataræði og guðaveigum. Ég ætla mér að vera búin að ná þessum 600 grömmum burt aftur í næstu viku og ég veit að það tekst
Fyrir utan það að mataræði er komið í réttar skorður þá er ég að hreyfa mig þó nokkuð í hverri viku. Við göngum hér lítinn hring í flestum hádegishléum, ég fer í leikfimi tvisvar í viku s.k. magi/rass/læri-leikfimi auk þess hef ég farið í tvo langa göngutúra síðan um helgi - en skokkið er ekki dottið inn enn en það verður gerð bót á því þegar fram líða stundir.
Þessa dagana er þrálátur hósti að gera útaf við mig - hélt í gær að ég væri með hita en ég var að kenna og fann allt í einu að kaldur sviti spratt fram á ennið á mér....en mér finnst ég samt ekki vera neitt veik....skrítið.
Fjölskyldan er í góðum gír, núna snýst allt um þá ákvörðun okkar að flytja út fyrir landsteinana en þetta var ákvörðun sem við tókum s.l. sumar. Þetta byrjaði allt þegar mér var boði starf í öðrum landsfjórðungi en það hefði þýtt flutningur með öllu tilheyrandi og þ.a.l. væru allar pælingar um framhaldsnám komnar í salt. Við hugsuðum um þetta og ákáðum að nú skildum við gera alvöru úr því sem stefnan hefur alltaf verið sett á - að flytja út og ég færi í mastersnám. Við gerðum þetta ekki opinbert fyrr en núna nýlega en erum búin að vinna ákveðna undirbúningsvinnu en ég er búin að fá jákvæð viðbrögð frá skólanum sem ég sæki um í þannig að nú er ekkert annað að gera en að einhenda sér í þetta.
Það má eiginlega segja að efnahagskreppan og allt sem henni hefur fylgt hafi svo styrkt okkur í því að láta vaða en framundan er 20-30% niðurskurður í vinnunni minni og bara fínt að ég yfirgefi "pleisið"!
Við ákváðum að gera tilraun til að selja húsið en það kemur bara í ljós hvort eitthvað gerist í þeim málum.
Námið sem ég stefni á er master í skógfræði við UMB í Noregi en staðsetningin er Ås sem er rétt sunnan við Osló.
Þá vitið þið það kæru félagar
Fyrir utan það að mataræði er komið í réttar skorður þá er ég að hreyfa mig þó nokkuð í hverri viku. Við göngum hér lítinn hring í flestum hádegishléum, ég fer í leikfimi tvisvar í viku s.k. magi/rass/læri-leikfimi auk þess hef ég farið í tvo langa göngutúra síðan um helgi - en skokkið er ekki dottið inn enn en það verður gerð bót á því þegar fram líða stundir. Þessa dagana er þrálátur hósti að gera útaf við mig - hélt í gær að ég væri með hita en ég var að kenna og fann allt í einu að kaldur sviti spratt fram á ennið á mér....en mér finnst ég samt ekki vera neitt veik....skrítið.
Fjölskyldan er í góðum gír, núna snýst allt um þá ákvörðun okkar að flytja út fyrir landsteinana en þetta var ákvörðun sem við tókum s.l. sumar. Þetta byrjaði allt þegar mér var boði starf í öðrum landsfjórðungi en það hefði þýtt flutningur með öllu tilheyrandi og þ.a.l. væru allar pælingar um framhaldsnám komnar í salt. Við hugsuðum um þetta og ákáðum að nú skildum við gera alvöru úr því sem stefnan hefur alltaf verið sett á - að flytja út og ég færi í mastersnám. Við gerðum þetta ekki opinbert fyrr en núna nýlega en erum búin að vinna ákveðna undirbúningsvinnu en ég er búin að fá jákvæð viðbrögð frá skólanum sem ég sæki um í þannig að nú er ekkert annað að gera en að einhenda sér í þetta.
Það má eiginlega segja að efnahagskreppan og allt sem henni hefur fylgt hafi svo styrkt okkur í því að láta vaða en framundan er 20-30% niðurskurður í vinnunni minni og bara fínt að ég yfirgefi "pleisið"!
Við ákváðum að gera tilraun til að selja húsið en það kemur bara í ljós hvort eitthvað gerist í þeim málum.
Námið sem ég stefni á er master í skógfræði við UMB í Noregi en staðsetningin er Ås sem er rétt sunnan við Osló.
Þá vitið þið það kæru félagar
Hildur í Holti
#2
28. janúar 2009 klukkan 13:40
Gott hjá ykkur að skella ykkur út, hér er bara alveg ágætt að vera, góðir kennarar að mínu mati og gaman að tala norsku! Verst bara að ég verð farin heim þegar þið komið, hefði verið gaman að hafa fleiri Íslendinga hér núna.
Kær kveðja frá Ási
Kær kveðja frá Ási
#3
28. janúar 2009 klukkan 16:38
Flott hjá þér. Og þarna fetar þú í fótspor margra skógræktarmanna.
Kveðjur, Gyða
Kveðjur, Gyða
#4
29. janúar 2009 klukkan 09:51
Blessuð.
Ég kíkka stundum hér inn flott hjá þér að drífa þig til Noregs þar er nú ekki amarlegt að vera :)
Kv. Edda Brynleifs
Ég kíkka stundum hér inn flott hjá þér að drífa þig til Noregs þar er nú ekki amarlegt að vera :)
Kv. Edda Brynleifs
#5
29. janúar 2009 klukkan 21:03
Mikið rosalega líst mér vel á þetta og eins og við vorum búin að ræða þá er stefnan sett út til ykkar sumarið 2010 hehe. En þetta á allt eftir að verða frábært hjá ykkur og þetta á bara eftir að ganga vel!!
kílóin fara svo að fjúka með vorinu þar sem þá ferðu að komast meira út að skokka og svoleiðis, vildi óska að ég hefði þessa ákveðna.
kv. Solla skólastelpa