þriðji hluti í spennusögunni ógurlegu
22. janúar 2009 klukkan 09:28
Á mánudag bloggaði ég aðeins um litla átakið mitt en ég sagðist ekki gera ráð fyrir neinum sigrum á vigtinni þessa vikuna en það gerðist jú, 400 gr kvöddu þessa vikuna þannig að á tveimur vikum hafa 1,4 kg. kvatt.
Það stendur allt til bóta varðandi hreyfingu því á þriðjudag fór ég í fyrsta tímann minn í magi/rass/læri en ég ætla að taka í það minnsta eitt svoleiðis námskeið núna á meðan mesta skammdegið gengur yfir og veðráttan er ekki til þess fallin að hægt sé að treysta á útiíþróttaiðkun. Enda er það nauðsynlegt að fara í svona leikfimi til að styrkja sig
þannig að þriðjudagar og fimmtudagar eru leikfimidagar.
Það er kominn fimmtudagur, bóndadagur er á morgun sem þýðir að þorrinn er að byrja og við erum að fara á þorrablót á laugardag - allt í hófi en ég mun smakka á öllu sem mig langar í af hlaðborðinu
Það stendur allt til bóta varðandi hreyfingu því á þriðjudag fór ég í fyrsta tímann minn í magi/rass/læri en ég ætla að taka í það minnsta eitt svoleiðis námskeið núna á meðan mesta skammdegið gengur yfir og veðráttan er ekki til þess fallin að hægt sé að treysta á útiíþróttaiðkun. Enda er það nauðsynlegt að fara í svona leikfimi til að styrkja sig
þannig að þriðjudagar og fimmtudagar eru leikfimidagar.Það er kominn fimmtudagur, bóndadagur er á morgun sem þýðir að þorrinn er að byrja og við erum að fara á þorrablót á laugardag - allt í hófi en ég mun smakka á öllu sem mig langar í af hlaðborðinu

Góða skemmtun á þorrablóti, ég er líka að fara á laugardag og ælta einmitt eins og þú að fá mér það sem mig langar til en samt í hófi.