Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

mánudagur enn á ný :)

19. janúar 2009 klukkan 08:01
Hef nú ekki verið nógu samviskusöm síðustu daga og geri því ekki ráð fyrir neinum sigrum í vigtuninni á morgun.
Hins vegar gerðum við fjölskyldan svolítið uppbyggjandi í gær, við brunuðum upp í Skorradal með heitt súkkulaði á brúsa og snúða og röltum einn hring í trjásafninu, síðan gengum við smá spöl meðfram vatninu. Þetta var mjög hressandi og mæli ég með svona gæða-stund (e. quality time) Þetta kostar ekki mikla peninga og tíminn sem fer í þetta getur verið breytilegur.
Jæja, best að fara að gera eitthvað, kennsluundirbúningur og greinarskrif eru verkefni vikunnar.

smá uppfærsla.....
Við réðumst á bílskúrinn í gær. Losuðum okkur við fullt af dóti sem safnast hefur upp í þar undanfarin ár....eða síðastliðin fimm og hálft ár. Þarna voru kassar utan af jólaseríum og gömlum símum sem við höfum ekkert að gera við, brotnir hlutir sem einhverntíman átti að gera við, úrsérgengin föt, gamlar glósur og margt margt fleira. Það sem liggur núna fyrir er að við Stefán Snær förum í gegn um kassana hans sem eru fullir af allskonar dóti en eitthvað á að fara í plastkassa og geymast þar til Þórður Logi stækkar upp í það en það er eins og playmodót í tonnavís, víkingaskip, kastali og fleira, lego - einnig í tonnavís og forláta bílabraut. Annað dót verður farið með á leikskólann eða gefið þeim sem vilja hirða. Ég sé fyrir mér að það þurfi ekki að kaupa dót handa Þórði Loga í framtíðinni þar sem það er nóg til - en lego og playmo er dót sem eldist sérlega vel.
Þegar ég pakkaði niður jólaskrautinu um daginn tók ég einnig vel til í því en við áttum helling af drasli sem hafði verið keypt í upphafi búskapar okkar í RL búðinni og fékk það að fjúka. Okkur hefur nefnilega áskotnast í gegnum árin fullt af íslensku handverki sem við kjósum að skreyta með í stað innfluttra plastkúlna sem heilla okkur lítið.
Jæja, látum þetta tiltektarblogg duga í bili Laughing
 
Anna Lísa
Talandi um að taka bílskúrinn í gegn, heheh ég kem í vikunni og sæki hundabúrið, tengdó er að koma næstu helgi og þá get ég losnað við það. Ert þú ekki með eitthvað á prjónunum ? ég er að prjóna kjól, keðju munstrið en ég breytti sniðinu, það er svo ólánlegt svona beint eins og það er í blaðinu, ég tók úr og gerði hann mikið flottari. Hann er svartur og hvítur.
#1
19. janúar 2009 klukkan 09:53
 
Margrét
Frábært hjá ykkur :) Bæði Skorradalsgangan og bílskúrstiltektin...

Vegna vinnu minnar þá tek ég á móti alls konar leikföngum sem fólk myndi annars henda...ef það er eitthvað þarna sem Þórður Logi er hættur að leika sér með og er dagvistunarbarnahæft, þá endilega komdu með það til mín :)

Kv. Margrét
#2
19. janúar 2009 klukkan 22:10
 
Guðrún Pálma
Sælar duglega kona

Gott framtak hjá ykkur kakóið og göngutúrinn.

Tókum nokkra daga síðasta sumar í svona ferðir þær eru ómetanlegar.
Geymslan var tekin í gegn fyrir jól og guð minn góður hvað maður getur sankað að sér af drasli. kv úr nesinu
#3
20. janúar 2009 klukkan 10:47

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.