1868 var ţađ....
16. janúar 2009 klukkan 11:25
Vatnsberi: Hvers konar rannsóknarvinna liggur vel fyrir þér í dag. Gleymdu því ekki að tvær hliðar eru á öllum málum og oft þarf lítið til að skapa misskilning.
Það var einmitt málið í morgun, kannski frekar ómerkilegt fyrir venjulegan lesanda en virkilega mikilvægt fyrir áhugafólk um hnignun íslensku skóganna. Ég var semsagt að undirbúa kennslu og fór að reyna að rifja upp í morgun hvernig þetta hafi verið með skoska ljáinn. Skoski ljárinn olli byltingu á Íslandi á seinnihluta nítjándu aldar en hann þurfti ekki að dengja líkt og gert var við aðra ljái. Sem þýddi að þörf fyrir viðarkol minnkaði sem þýddi að kolagerð minnkaði til muna og ágangi á birkiskóga landsins minnkaði líka.....birkið var notað í kolagerð. Það sem ég var að spá hvort Ólafsdalsljárinn hafi verið gerður að skoskri fyrirmynd eða var skoski ljárinn alltaf kallaður Ólafsdalsljárinn....jú það var þannig og hann var fyrst fluttur inn árið 1868. Það sem ruglaði mig var tengingin við Ólafsdal en það var Torfi í Ólafsdal sem flutti hann inn...sko ljáinn. Það munaði semsagt litlu að þarna færi smá misskilningur í gang, var þetta einn og sami ljárinn eða ekki, það var málið.
Já, ég veit, skrítið að blogga um þetta.....en annars er allt gott að frétta. Það gekk vel með bekkinn hans Stefáns í gær en ég bakaði 8 pizzur sem kláruðust að mestu, auk þess voru þambaðir ótrúlega margir lítrar af gosi og fullt af snakkpokum voru etnir upp til agna. Já, það er ótrúlegt hvað 15 stykki úr 7. bekk geta torgað. Eftir að allir voru farnir, ég búin að ganga frá og ryksuga og skúra stofu, eldhús, hol og gang var klukkan að verða hálf ellefu, þá fór ég út í ferska loftið í afmæliskaffi til Þórunnar Eddu - fínn endir á góðum degi.
Helgin fer að einhverju leyti í vinnu og auðvitað samveru með fjölskyldunni. Stefán Snær er að fara að keppa á móti á morgun þannig að við Þórður Logi verðum ein heim, ætli við förum ekki út að renna ef veðrið verður til friðs. Sjáum til. Góða helgi

Bestu kveðjur af Hólnum