Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Afmæli og spennusagan ógurlega

14. janúar 2009 klukkan 08:28
Í dag er Stefán Snær þrettán ára. Vá hvað tíminn líður. Við vöktum hann í morgun með afmælispakka og var ekki laust við að yngri drengurinn hafi verið afbrýðissamur. Stefán Snær var mjög ánægður með pakkann en í honum var ipod hátalari.
Það átti að vera fundur í skólanum seinnipartinn í dag en við ákváðum því að það yrði bekkjarpartý eftir skóla á morgun í staðinn. Þau eru 15 í bekknum, þannig að það verður nóg að gera hjá mér að baka pizzur í tonnatali, því það er ekkert smá sem krakkar á þessum aldri geta gúffað í sig. Svo á að horfa á mynd og borða fullt af snakki......Wink

Að öðru. Í gær var vigtunardagur en þá hafði ég verið búin að taka þann "danska" með trompi í viku. Merkilegt hvað þetta er að virka vel en ég missti eitt kíló á þessari viku en markmiðið er að losna við 5 kg fyrir 17. mars n.k. Auk þess hef ég verið að hreyfa mig eitthvað nánast daglega þó ég hafi ekki verið að gera neitt stórfenglegt, bara að ganga í og úr vinnu, hádegisgöngur með fólkinu sem vinnur í sama húsi og ég og svo einn og einn langur göngutúr. Stefnan er að fara á hlaupabretti nokkrum sinnum í viku því nú verð ég að fara að þjálfa lungun upp því með vorinu ætlum við Haukur að þramma á nokkur fjöll.

Jæja en svona lítur þetta út á tickernum.

 
Hildur í Holti
Sæl skottan mín og flottur árangur hjá þér. Ég er með mjög svipuð markmið hjá mér næstu vikurnar og sá hjá þér þennan ticker og reyndi að fá hann til að virka, en hann vill ómögulega leyfa mér að léttast!! Hvernig breytir maður honum?
kv. Hildur
#1
14. janúar 2009 klukkan 09:34
Gleðilegt ár og takk fyrir kveðjurnar.
Sé að þér gengur glymrandi í átakinu. Kveðjur, sá gamli.
#2
14. janúar 2009 klukkan 09:42
 
Anna Lísa
Til hamingju með stóra strákinn þinn:)
#3
15. janúar 2009 klukkan 14:02
 
Silla
Til hamingju með UNGLINGINN þinn... vá hvað tíminn líður, ekki langt í fermingu.. hmmm hehe
#4
15. janúar 2009 klukkan 14:20
 
Margrét
Glæsilegur árangur :) Til hamingju!!
#5
15. janúar 2009 klukkan 23:56

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.