Jæja
11. janúar 2009 klukkan 16:33
Nú er helgin að styttast í annan endann og best að athuga hvort ég hafi áorkað einhverju af því sem ég talaði um á föstudag.... jú við fórum í matarboð, ég tók til og þvoði þvott, hreyfði mig, fengum gesti, fórum í eina heimsókn, skelltum okkur í sund og hjálpaði Stefáni að baka eina sort. Til að toppa helgina (eða hitt þó) þá varð eitthvað lítið um svefn síðustu nótt en Þórður Logi kastaði upp tvisvar og leið ekki vel, hann var reyndar mjög brattur strax í morgun og er búin að borða þannig að þetta hefur gengið hratt yfir. Þvottavélin fékk því extra mikið að gera í nótt og morgun og ég ætla bara rétt að vona að lúsin fari ekki að skjóta upp kollinum - því þá brennur vélin yfir - það væri alveg til að toppa helgina. Við höfum ekki orðið vör við hana blessaða en kamburinn er við hliðina á tannburstanum og kembing er hltui af daglegu rútínunni en það hefur verið barátta við þetta óféti á leikskólanum undanfarnar vikur.
Jæja best að hætta þessu tuði, hér verður fiskur í kvöldmat mmmmm og styttist í að ég fari að undirbúa hann til eldunar.
p.s. ef fólk á Hvanneyri les þetta þá var ég beðin um að láta vita að Edda Þorvalds getur tekið við jólatrjám ef fólk er ekki búið að gera aðrar ráðstafanir
hafið bara samband við hana.
Jæja best að hætta þessu tuði, hér verður fiskur í kvöldmat mmmmm og styttist í að ég fari að undirbúa hann til eldunar.
p.s. ef fólk á Hvanneyri les þetta þá var ég beðin um að láta vita að Edda Þorvalds getur tekið við jólatrjám ef fólk er ekki búið að gera aðrar ráðstafanir
hafið bara samband við hana.
Guðrún Pálma
Takk kærlega fyrir föstudagskvöldið þetta var bara gaman. kv úr nesinu.
#2
12. janúar 2009 klukkan 10:26
Ansi ertu búin að vera dugleg um helgina... Ég þarf að fara að gera raunhæfari markmið en mín eru alltaf svo Sky high að ég á aldrei séns í að klára verklista helganna... Sjáumst sprækar á þriðjudaginn....