föstudagsblogg
09. janúar 2009 klukkan 13:33
Jæja, þá er vinnuvikan senn á enda, ótrúlegt alveg hvað ég hef verið virk í blogginu undanfarið. Við ætlum að borða mat með góðum vinum í kvöld, þeim Guðrúnu og Gísla og Páli, Inga Dóra verður fjarri góðu gamni en við hin ætlum að slaka á eftir vinnuvikuna. Drengirnir fá að koma með að hitta félagana í nesinu, þannig að það verður fjölskyldustemming í kvöld. Svo er það helgin - ætli henni verði ekki bara varið heima fyrir í tiltekt og kannski gestamóttöku ef einhver kíkir við....ja hver veit
Kannski ég baki eitthvað því það styttist í að eldri drengurinn verði 13 ára! Púff hann er að vaxa frá mér....... Jú og svo fer maður auðvitað í göngutúr - fer ekkert að klikka á því eftir þokkalega viku hreyfingarlega séð.
p.s. Þórður Logi hitti háls-nef- og eyrnalækni í gær og það gekk bara vel, allt í góðu með drenginn - hann er ekki heyrnalaus heldur er haldinn genatískum háværum róm og nennir ekki að nota suma stafi....
Kannski ég baki eitthvað því það styttist í að eldri drengurinn verði 13 ára! Púff hann er að vaxa frá mér....... Jú og svo fer maður auðvitað í göngutúr - fer ekkert að klikka á því eftir þokkalega viku hreyfingarlega séð.p.s. Þórður Logi hitti háls-nef- og eyrnalækni í gær og það gekk bara vel, allt í góðu með drenginn - hann er ekki heyrnalaus heldur er haldinn genatískum háværum róm og nennir ekki að nota suma stafi....
:o)