Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

í annarbyrjun

08. janúar 2009 klukkan 14:30
Vá, hvað þetta er fallegur dagur, ansi hlýtt úti og eiginlega logn.
Fjarnemarnir voru hér í dag og átti ég klukkutíma með þeim fyrir hádegið, fórum yfir skipulag annarinnar og þ.h. Eftir helgi koma svo staðnemarnir og þá mun ég verða með í kennslustundum tvisvar í viku fram á vorið. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, mér finnst svo stutt síðan ég var að kynnast hópnum sem ég kenndi í fyrra, svo útskrifuðust þau og eru núna út um allt en flest eru þau nú reyndar vinir mínir á Facebook Laughing þannig að ég get fylgst með þeim.

Fékk greinina mína frá meðhöfundinum núna rétt í þessu þannig að verkefnin eru næg næstu vikur - kennsla, greinarskrif og einhver skráningarvinna.

Allt gengur annars bara vel, jólaskrautið komið í kassa,  matarboð og tiltekt um helgina, bara gleði. Hlakka líka til að skrifa "part two" í spennusögunni ógurlegu en það verður ekki fyrr en í næstu viku.
 
Berglind
Flott blogg, jákvætt og skemmtilegt.
Lífiði er gott, guð er góður
knús
#1
08. janúar 2009 klukkan 15:44

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.