Gleðilegt ár kæru vinir
02. janúar 2009 klukkan 09:52
Jæja, þá er árið 2009 gengið í garð, enn ein áramótin og maður alltaf jafn hissa á því hve tíminn líður.
Við höfðum það alveg ljómandi gott yfir hátíðirnar en erum rútínunni fegin. Framundan eru annasamir mánuðir en auk vinnunnar minnar hjá Vesturlandsskógum ætla ég að kenna einn áfanga í bændadeild og þá bæði í staðnámi og fjarnámi. Haukur hefur alltaf nóg að gera í sinni vinnu og sama á við um strákana, litlar breytingar þar fyrir utan að leikskólatíminn hjá Þórði mun styttast um korter frá 1. apríl vegna niðurskurðar hjá Borgarbyggð.
Stefán Snær æfir badminton sömuleiðis Haukur en að auki er hann í ellismellafótbolta
Samkvæmt tímaplaninu þá eru það fimmtudagar og laugardagar sem þeir eru báðir heima, þ.e. eru ekki á æfingum. Ég verð ekki í neitt skipulögðum íþróttatímum heldur mun reyna að fara sem mest á morgnana í einhverskonar hreyfingu skokk-spinning-göngutúrar, það er tími sem hentar mér vel auk þess kemst ég ekki á öðrum tíma og ekki er ég að taka þennan tíma frá einhverju öðru.
Annars ætla ég að vona að stjörnuspáin mín í dag komi til með að vera nokkuð lýsandi fyrir þetta ár, ekki bara daginn í dag:
Vatnsberi: Þú hefur mikla löngun til þess að víkka út heim þinn og læra nýja hluti. Hugsun þín er skynsöm, raunsæ, íhaldssöm og rökföst.
Við höfðum það alveg ljómandi gott yfir hátíðirnar en erum rútínunni fegin. Framundan eru annasamir mánuðir en auk vinnunnar minnar hjá Vesturlandsskógum ætla ég að kenna einn áfanga í bændadeild og þá bæði í staðnámi og fjarnámi. Haukur hefur alltaf nóg að gera í sinni vinnu og sama á við um strákana, litlar breytingar þar fyrir utan að leikskólatíminn hjá Þórði mun styttast um korter frá 1. apríl vegna niðurskurðar hjá Borgarbyggð.
Stefán Snær æfir badminton sömuleiðis Haukur en að auki er hann í ellismellafótbolta
Samkvæmt tímaplaninu þá eru það fimmtudagar og laugardagar sem þeir eru báðir heima, þ.e. eru ekki á æfingum. Ég verð ekki í neitt skipulögðum íþróttatímum heldur mun reyna að fara sem mest á morgnana í einhverskonar hreyfingu skokk-spinning-göngutúrar, það er tími sem hentar mér vel auk þess kemst ég ekki á öðrum tíma og ekki er ég að taka þennan tíma frá einhverju öðru. Annars ætla ég að vona að stjörnuspáin mín í dag komi til með að vera nokkuð lýsandi fyrir þetta ár, ekki bara daginn í dag:
Vatnsberi: Þú hefur mikla löngun til þess að víkka út heim þinn og læra nýja hluti. Hugsun þín er skynsöm, raunsæ, íhaldssöm og rökföst.
http://maja1907.bloggar.is
Maja
Gleðilegt ár Sigga mín... og það sem eftir er af jólunum. Vonandi hafið þið fjölskyldan átt góðar stundir saman.
#1
02. janúar 2009 klukkan 11:13
HÆ... duglega nágrannakona!!
Má ég prófa að fara með í stafgöngu einu sinni... Efast um að ég lifi það af en ég heyri á Bebbu að henni finnst þetta æði... Eftir ofát yfir jólin þá er ég ti lí hvað sem er og stefni á að vera svolítið dönsk fram á vor...
PS. Gleðilegt ár...

#2
03. janúar 2009 klukkan 00:24
Ellý
Gleðilegt nýtt ár Sigga mín;) Get nú ekki sagt takk fyrir það gamla þar sem við hittumst ekkert það árið!! Var einmitt að tala um það við mömmu og pabba að okkar fjölskylda og þín fjölskylda ættum endilega að hittast öll saman, fara í sumarbústað eða í tjaldútilegu. Það yrði örugglega mikið hlegið:)
bestu kveðjur,
Ellý
bestu kveðjur,
Ellý
#3
04. janúar 2009 klukkan 12:31
Ingibjörg
Gleðilegt ár kellingin mín.
Vona að við náum að hittast sem fyrst þar sem jólahittingurinn fór nú eins og hann fór.
Bestu kveðjur í bæinn
Vona að við náum að hittast sem fyrst þar sem jólahittingurinn fór nú eins og hann fór.
Bestu kveðjur í bæinn
#4
04. janúar 2009 klukkan 21:22
Hildur í Holti
Sæl Sigga mín og gleðilegt árið!
Ég vil bara kvitta fyrir að ég kíki annað slagið hérna inn, sérstaklega ef mig vantar að lesa eitthvað jákvætt. Þú ert úrvals bloggari og ég hvet þig áfram í því, sem og öllu öðru sem þú fyrir mikinn dugnað nærð að koma fyrir í dagskránni.
Kveðja að norðan

#5
05. janúar 2009 klukkan 10:39
Anna Lísa
Gleðilegt ár :) Sjáumst vonandi fljótlega
#6
05. janúar 2009 klukkan 10:53