Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Vigtin, maturinn og handavinnan

30. desember 2008 klukkan 09:34
Vigtarblogg:
Takk fyrir kommentin. Jú, jú, það er vissulega verið að auglýsa námskeið hjá vigtarráðgjöfunum en það var líka gert í haust og í fyrra en lítil sem enginn áhugi var á því - þannig að aldrei hefur neitt orðið úr neinu. Ég hef hins vegar engar áhyggjur því ég veit alveg hvernig ég geri þetta og þarf ekki að eyða 15-20 þúsund krónum fyrir átta vikna aðhald.... nei, nei, nei, ég nota frekar þessar 15-20 þúsund krónur í eitthvað annað t.d. að styrkja björgunarsveitirnar Wink 
Markmiðið er semagt að taka 5 kíló af fyrir 15. mars en það gera u.þ.b. 500 grömm á viku sem ætti nú að reynast létt verk. Auk þess stefni ég á að styðja við bakið á nokkrum vinkonum sem ætla að taka þessi mál í sínar hendur og breyta um lífsstíl á nýju ári - það verður gaman Smile

Matarblogg:
Ég fór í Borgarnes í gær og keypti kalkún og efni í fyllingu en fylling ársins verður sú sama og í fyrra en hún tókst svo ljómandi vel: laukur, sveppir, sellerí, skinka, heslihnetur og eitthvað fleira - sósan er heldur ekki af verri endanum púrtvínssósa. Allt þetta er  a la Gummi (mágur) og Silla (systir). Meðlætið er svo waldorfsalat og sætar kartöflur - þarf eiginlega ekki að vera neitt meira Cool

Handavinnublogg:
Í gær byrjaði ég á léttlopavesti, það verður kolsvart með skærum, skræpóttum litum í munstrinu, ferlega flott. Svo er ætlunin að prjóna sjal Maríu prinsessu á næsta ári en í uppskriftinni er talað um að nota ullargarn svona barnaull t.d. lanett eða dale en ég er að spá í að nota loðband í sjalið.

Smá hugleiðing:
Annar hver maður á þessu blessaða landi hér talar um "rest" segir gleðilega jólarest!!! Eða gleðilega rest!!! Þetta fer í taugarnar á mér - bara svo þið vitið af því....... Það er alveg hægt að segja bara gleðilega hátíð, hvað er að því? Af hverju að troða þessari "rest" aftan við? OG þetta virðist ekki vera eitthvað sem fylgir ákveðnum aldri að tala svona heldur fólk á öllum aldri, nú síðast í morgun hitti ég mann á sextugs eða sjötugsaldri (svolítið ellilegur) sem er í virðulegri stöðu fyrir "sunnan" og hans sagði "gleðilega rest"!
 
Berglind
Já nú verður tekið á því mín kæra! Ég þarf sko að losna við miklu meira en 5 kg en ég ætla líka að gefa mér aðeins lengri tíma en 15 mars. Frá því í lok febrúar 2008 eru farin hjá mér amk 11 kg (vigtaði seinast uppúr miðjum des) Ég er ánægð með árangurinn þó svo að það hefði alveg mátt fara meira!! maður er alltaf svo gráðugur, vill meira, meira, meira.
Handavinnubloggið þitt er flott, ég var búin að ákveða að þegar ég myndi klára masterinn færi ég að prjóna aftur, hef ekki prjónað síðan í barnaskóla en þá gerði ég þónokkuð af því og líkaði vel. Kannski ég mæti bara til þín með prjóna og garn eina kvöldstund og komi mér af stað!! er það í boði??? Svona svo ég noti þig til að styðja mig allt sem ég tek mér fyrir hendur híhíhíhí.
Svo er ég sammála þessu með restina. Í mínu fagi er talað um restkarbohydrater á hinum norðurlöndunum, ég þurfti að snúa þessu yfir á okkar ylhýra og datt fyrst í hug kolvetna rest, en svo hugsaði ég með mér afhverju ekki að snúa rest líka, svo það er núna kolvetna leyf. Rest er útlenska og við segjum ,,íslenskt já takk" þessa dagana svo við blásum á jóla-rest.
#1
30. desember 2008 klukkan 09:59
 
Þórunn Harðar
Mikið er ég sammála þér varðandi "restina" - þetta er algerlega óþolandi. Málið er bara að Íslendingar eru svo smáborgaralegir og þetta er einmitt merki um það. Hér þykir allt svo hallærislegt - allt í einu getur fólk ekki lengur sagt "Gleðilega hátíð" því þá þýði það að fólk sé svo trúað og það má náttúrulega ekki opinbera það fyrir neinum. T.d. er almennt gert grín að þeim sem mótmæla opinberlega - þetta þykir bara hallærislið og vandræðapésar - hinn almenni borgari getur nú varla látið sjá sig við slíka iðju......
GLEÐILEGA HÁTÍÐ!
#2
30. desember 2008 klukkan 18:40
 
SSólrún Halla
Já get ekki annað en verið sammála ykkur með RESTina, mér finnst þetta bara fáranlegt, hef reyndar aldrei heyrt þetta en algjörlega út í hött. Já Berglind ég er síðan sammála þér þetta með "kíló í burtu" hvort maður megi aðeins bögga þig Sigga mín til þess að koma sér af stað eftir jólin, hef líklega ekki tíma í handavinnu, en stefni nú samt á að klára peysuna á Telmu Sól helst áður en ég fer í skólann hehe, en vonandi förum við samt eitthvað að ganga líka er það ekki annars??
#3
31. desember 2008 klukkan 09:10
 
Silla
Góðan dag!!!
Gleðilegt nýtt ár kæra fjölskylda og kærar þakkir fyrir árið sem var að líða!! Nýtt matarklúbbsár hafið hehe og matarklúbbsútilegan okkar í júní ekki langt undan hehe...
gleðilega JÓLAREST................. hahahhahahahaa
kv Silla.
#4
01. janúar 2009 klukkan 20:48
 
Margrét
Jamm...ég hafði líka fulla trú á því að þú gætir þetta á eigin spýtur, enda ertu skipulögð manneskja með sjálfsagann í lagi. Þótt ég hafi nú farið á svona námskeið þá er ég samt ekki viss um að ég geti þetta ein og sjálf...verð að hafa eitthvert aðhald og er hrædd um að nammiskápurinn verði ansi freistandi þegar maður er svona einn og heimavinnandi. Ekki þar fyrir...ég styrkti nú björgunarsveitirnar þótt ég væri búin að plana að fara á svona námskeið...dettur hreinlega ekki annað í hug!!

En, gangi ykkur vel í átakinu og breytta lífsstílnum :)
#5
01. janúar 2009 klukkan 22:01

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.