Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hálfleikur

29. desember 2008 klukkan 09:27
Jæja þá er hálfleikur, tveir vinnudagar svona til að koma manni niður á jörðina og undirbúa mann fyrir áramótin.
Við fjölskyldan höfðum það alveg ljómandi fínt yfir jólin, allt var þetta hefðbundið: Möndlugrautur í hádeginu á aðfangadag, Sigríðarsúpa og lamb í jólamatinn, kvöldkaffi í Garði - og á jóladag afgangar í hádeginu og hangikjötsveisla í góðum hópi um kvöldið. Á annan í jólum brunuðum við norður í Skagafjörðinn þar sem við þræddum jólaboð og komum svo heim í gær.
Framundan er tveggja daga vinnutörn og svo koma áramótin. Það stendur til að endurtaka leikinn frá í fyrra og elda kalkún sem verður etinn í góðra vina hópi.
Miðað við hvað nálin á vigtinni hefur stigið undanfarna daga og vikur þá held ég að það verði ekkert erfitt að finna áramótaheit Wink 
Hafið það sem best kæru lesendur, ég ætla að gera mitt besta Laughing
 
Ţórey
Blessuð og sæl,
Það verður nú það sama hérna megin, ekki vandamál að finna áramótaheit. Borða hollan mat, hreyfa sig meira og drekka minna ;)
Annars er ég búin að hafa það of gott yfir jólin, mikið etið af góðum mat og sætabrauði. Svo fer maður í fjárhúsin 2x á dag til að geta borðað meira hihi.... En það er líka svo gaman að þessum kindum..
Bestu kveðjur úr Suðursveitinni :)
#1
29. desember 2008 klukkan 14:11
 
Margrét
Líst vel á planið hjá þér...ekki örvænta samt með vigtina...sá á heimasíðu danska að þær ætla að vera með námskeið í Borgarnesi eftir áramót ef næg þátttaka fæst...svona ef þér finnst þú þurfa aðhald... ;)
Annars finnst mér þú líta hrikalega vel út og ég veit að þú getur alveg tekið á málum sjálf, ef þér finnst þú þess þurfa.

Kv. Margrét
#2
29. desember 2008 klukkan 22:43

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.