Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

helgin framundan

19. desember 2008 klukkan 16:27

Þá er þessari vinnuviku lokið, aðeins tveir vinnudagar í næstu viku og þá er kominn aðfangadagur, svo verða tveir vinnudagar og þá er kominn gamlársdagur. Púff hvað tíminn líður. Ég vonast til að greinin sem ég er að skrifa verði í megindráttum tilbúin fyrir áramót, þá er bara vinna við fíniseringu og yfirlestur og smá viðbót frá öðrum höfundi eftir og þá er hún tilbúin. Ég geri ráð fyrir að hafa mánuð í þá vinnu en "deadline" á greinina er 1. feb.
Annars er bara allt gott að frétta, súpuboðið fyrir vinnufélagana heppnaðist vel - skemmtileg samverustund það.

Verkefni helgarinnar, það þarf að:
Baka (bara smá)
Þrífa (létt)
Höggva jólatré í Daníelslundi
Taka á móti gestum (en Kolla mágkona, börnin hennar og tengdó ætla að kíkja við á morgun)
Fara á tónleika með Bubba Morthens í Borgarnesi

Mánudagur: Vinna og smákökukaffi á kaffistofunni í 10 kaffinu (allir koma með sýnishorn)

Blogga aftur eftir helgi Wink Njótið jólaundirbúningsins

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.